Skinfaxi - 01.02.2010, Síða 37
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 37
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að
Laugum í Dalasýslu hófu formlega starf-
semi í byrjun árs 2005 en búðirnar eru
samstarfsverkefni Ungmennafélags
Íslands og Dalabyggðar. Ungmennabúð-
irnar eru í stöðugri þróun og mikil og
almenn ánægja er hjá nemendum og
kennurum grunnskólanna með dvöl ung-
mennanna að Laugum. Koma flestir skól-
arnir ár eftir ár. Ekki verður því annað
sagt en að framtíð búðanna sé björt og
spennandi.
Að Laugum er aðstaða öll hin glæsi-
legasta fyrir það verkefni sem Ungmenna-
og tómstundabúðirnar eru; heimavist
sem nú rúmar um 70 nemendur, full-
búið mötuneyti, íþróttahús, glæsileg 25
metra sundlaug með heitum potti,
kennslustofur og rými fyrir afþreyingu
og klúbbastarf auk þess að á staðnum er
staðsett Byggðasafn Dalamanna. Innan-
gengt er um allt húsnæðið á Laugum
þannig að enginn þarf að fara út nema
til útivistar og annarra sérstakra við-
burða utandyra.
Frábært svæði til útivistar
Allt umhverfi Lauga er sem sniðið að
þörfum búðanna. Þar er frábært svæði
til útivistar og náttúruskoðunar frá fjöru
til fjalls. Staðsetningin er einn af mikil-
vægum kostum búðanna. Nefna má að
Laugar eru í aðeins um 170 km fjarlægð
frá Reykjavík þegar Brattabrekka er ekin
og tæplega 300 km frá Akureyri ef ekið
er um Laxárdal. Tilgátuhús Eiríks rauða
er að Eiríksstöðum í Haukadal sem er í
35 km fjarlægð frá Laugum.
Á Laugum er næði og friður frá ýmsu
áreiti sem nemendur verða sífellt fyrir í
umhverfi sínu dags daglega og ættu að
gefast gott tækifæri til að sinna þeim
verkefnum sem á Laugum eru lögð fyrir
þá. Þeim sem hafa áhuga á skráningu
er ráðlagt að hafa samband við Önnu
Margrétu Tómasdóttur forstöðumann í
síma búðanna 434-1600 eða gsm-síma
861-2660. Netfang búðanna er:
laugar@umfi.is.
Foreldrafélög taka þátt
„Það hefur gengið vel í vetur. Haustið
fór rólega af stað en eftir áramótin tóku
bókanir mikinn kipp upp á við. Starfið í
búðunum er alltaf að eflast og verða
betra. Foreldrafélög skólanna taka í aukn-
um mæli þátt í kostnaðinum fyrir dvöl-
ina með ýmsum fjáröflunum. Svo hafa
foreldrar komið með sínum skólum og
verið við gæslu. Þetta samstarf hefur
gengið mjög vel. Við erum þegar byrjuð
að taka niður bókanir fyrir næsta vetur
Starfið er alltaf að eflast
og ég er mjög bjartsýn á framhaldið,“
sagði Anna Margrét Tómasdóttir, for-
stöðumaður ungmenna- og tómstunda-
búðanna, í samtali við Skinfaxa.
Súper kúl hús Leifs heppna
Nemendur í Borgarhólsskóla á Húsa-
vík dvöldu í búðunum í febrúar og þær
Karítas og Elísabet, nemendur í skólan-
um, lýstu því hvernig fimmtudagurinn
11. febrúar hefði gengið fyrir sig.
„Dagurinn í dag var eins og dagurinn í
gær nema að hópar 1 & 2 fóru í sveitaferð.
Fórum með rútu út í fjós (sem er nálægt
svona engu!) og kikkuðum á beljurnar.
Þetta var svona slatti af beljum og Þor-
grímur, bóndinn á bænum, sýndi okkur
hvernig ætti að mjólka þetta (agalegt
„græju system“). Þorgrímur gaf okkur
svo „awesome“ ís og það var rosalega
margt að skoða. Þegar við vorum búin í
fjósinu var hoppað aftur upp í rútu og
við skelltum okkur á eitt stykki víkinga-
bæ. Húsið var svona eftirlíking af húsinu
sem Leifur heppni fæddist í, „súper kúl“,
sko. Grilluðum brauð og klæddum okk-
ur í víkingabúninga. Svo var förinni heit-
ið niður í fjárhús. Bóndinn þar gaf okkur
banana að borða og svo fórum við að
tékka á blessuðum rollunum. Hittum
svala kind með 4 horn og svo nokkrar
bara með 1! Síðan bíluðum við heim
(Laugar= „our new home“) þar sem beið
okkar matur og heit sturta ... Eftir há-
degismat var svo val í íþróttir. Þar voru
hringir til að kasta, diskar til að snúa á
priki og trúðahjól til að spreyta sig á.
(Þeir bestu verða svo seldir í sirkusinn).
Svo kom kvöldmatur og svo frjálst. Eftir
það komu Laugaleikarnir. Leikar sem
maður er dæmdur til að verða sér til
skammar en samt svoooo „awesome“.
Strumparnir voru í 1. sæti, 1 stigi á und-
an Gleðigosunum og Broskarlasamfélag-
ið rak lestina. Voru veitt verðlaun fyrir
leikana og ýmislegt annað og svo var
sýnt glæsilegt myndbrot af dvöl okkar
hér. Eftir leikana var svo sundlaugar-
partý og það vantaði aðeins 4 til að bæta
laugarmetið í pottaruðningi! En þetta
var geðveikt lokakvöld og við eigum
eftir að sakna þessa „pleis“ rosa mikið.
Svo er það bara að pakka og fara á morg-
un. „See you then, mom and dad!““
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum: