Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 38

Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Kjör íþróttakarls og íþrótta- konu ársins í Kópavogi Alfreð Finnbogason, knattspyrnumaður úr Breiða- bliki, og Erna Björk Sigurðardóttir, knattspyrnukona úr Breiðabliki, voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópa- vogs fyrir árið 2009. Gunnsteinn Sigurðsson bæjar- stjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, afhentu viðurkenningarnar. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum þann 5. janúar sl. Fengu íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs að launum farandbikar og eignarbikar jafn- framt því sem þeim var hvoru um sig afhent 150.000 kr. ávísun í viðurkenningarskyni frá bæjarstjórn Kópavogs. Alfreð og Erna Björk voru valin úr hópi 38 íþrótta- manna sem fengu viðurkenningu ÍTK eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum. Alfreð sló rækilega í gegn á síðastliðnu sumri. Hann lék átján leiki í Pepsídeildinni, skoraði þrettán mörk og varð þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Á loka- hófi KSÍ völdu leikmenn og þjálfarar Pepsídeildarinnar hann efnilegasta leikmann ársins. Erna Björk átti frábært tímabil með meistaraflokki Breiðabliks árið 2009. Hún lék alla leiki liðsins í Pepsí- deildinni og VISA-bikarkeppninni. Hún var fyrirliði liðs- ins sem varð í öðru sæti bæði í Íslandsmótinu og bik- arkeppninni. Erna Björk var valinn besti leikmaður Pepsídeildarinnar af fjölmiðlum og KSÍ fyrir umferðir 1 til 6 og 7 til 12. Bjarki Gíslason íþróttamaður ársins hjá UFA Bjarki Gíslason er íþróttamaður ársins 2009 hjá UFA. Hann var valinn í A-landslið Íslands í frjálsum íþróttum og fór tvisvar erlendis til keppni fyrir Íslands hönd á sl. sumri. Bjarki er fjölhæfur frjálsíþróttamaður og er stangar- stökk hans aðalgrein, en hann hefur einnig verið val- inn í landsliðið til keppni í langstökki og þrístökki. Einnig er hann í úrvalshópi ungmenna hjá Frjáls- íþróttasambandi Íslands. Hann er langstigahæsti íþróttamaður UFA og á gildandi Íslandsmet í þremur aldurflokkum í stangarstökki, þ.e. í flokki 17–18 ára drengja, flokki 18–19 ára unglinga og flokki unglinga 20–22 ára, bæði utan- og innanhúss; 4,65 metra inn- anhúss og 4,68 metra utanhúss. Bjarki stundar íþrótt sína af kappi og áhuga og slær aldrei slöku við. Síðast en ekki síst má nefna að Bjarki er einstaklega góður félagi, eflir liðsandann og er fyrir- mynd annarra ungmenna, utan vallar sem innan. Stefán Jón Sigurgeirsson íþróttamaður Húsavíkur Kiwanisklúburinn Skjálfandi lýsti kjöri íþróttamanns Húsavíkur árið 2009 þann 20. febrúar sl. Fyrir valinu varð skíðakappinn Stefán Jón Sigurgeirsson sem tók m.a. þátt í vetrarólympíuleikunum í Vancouver. Í öðru sæti í kjörinu varð Arnþór Hermannsson, unglinga- landsliðsmaður í knattspyrnu og einnig frábær golf- leikari. Í 3. sæti varð svo Þóra Kristín Sigurðardóttir, fimleikastúlka. Íþróttafólk ársins – 2009: Ásdís Hjálmsdóttir íþrótta- maður Reykjavíkur Íþróttamaður Reykjavíkur 2009 er frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir í Glímufélaginu Ármanni. Borgar- stjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, afhenti Ásdísi farandbikar, sem gefinn er af Reykjavíkurborg, við hátíðlega athöfn af þessu tilefni í Höfða þann 18. febrúar sl. Ásdís bætti Íslandsmet sitt á árinu og er í 22. sæti á heimslistanum í spjótkasti. Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur staðið fyrir vali á íþróttamanni Reykjavíkur og er þetta því í 31. sinn sem íþróttamaður Reykja- víkur er kjörinn. Trausti Eiríksson íþróttamaður Borgarfjarðar Trausti Eiríksson, körfuboltamaður, hlaut þann 27. febrúar sl., á íþróttahátíð UMSB, titilinn íþróttamaður Borgarfjarðar. Trausti er afar vel að þessum titli kom- inn og hlaut fyrr í vetur titilinn íþróttamaður Borgar- byggðar. Jón Ingi Sigurðsson, sundmaður, var í öðru sæti og Sigurður Þórarinsson, körfuboltamaður, í þriðja sæti. Ágústa og Sævar Þór íþrótta- kona og íþróttamaður Árborgar Ágústa Tryggvadóttir var valin íþróttakona Árborg- ar og Sævar Þór Gíslason íþróttamaður Árborgar á upp- skeruhátíð ÍTÁ þann 29. desember s.l. Ágústa Tryggvadóttir náði glæsilegum árangri á frjálsíþróttavellinum á árinu. Hún bætti árangur sinn í átta greinum utanhúss og sjö greinum innanhúss. Ágústa varð Íslandsmeistari í hástökki og fimmtarþraut innanhúss og í sjöþraut utanhúss. Þá varð hún bikar- meistari í hástökki og stigahæst kvenna á Landsmóti UMFÍ á Akureyri. Alls vann Ágústa til tuttugu verðlauna á fimm stærstu mótum ársins sem sýnir vel hve fjölhæf hún er. Á sumarafrekalista FRÍ er Ágústa með næst besta árangur á landinu í hástökki, þrístökki og sjö- þraut. Innanhúss var hún með bestan árangur í fimmt- arþraut, langstökki og þrístökki án átrennu og næst bestan í hástökki og þrístökki. Ágústa keppti með landsliði Íslands á Smáþjóðaleikunum á Kýpur og í Evrópukeppni landsliða í Sarajevo. Hún hefur einnig verið valin í landsliðshóp Íslands 2010. Sævar Þór Gíslason fór fyrir meistaraflokki Selfoss sem náði því langþráða markmiði að vinna sér sæti í úrvalsdeild karla í fyrsta skipti í sögu félagsins. Liðið átti frábært tímabil og varð Íslandsmeistari í 1. deild 2009. Allt frá því er Sævar Þór gekk aftur til liðs við Selfoss 2007 hefur hann dregið vagninn og átt hvað stærstan þátt í uppbyggingu liðsins og góðum árangri þess. Hann ber heitið markakóngur með sæmd, enda hlaut hann þá nafnbót í 2. deild 2007 og 1. deild 2008 og 2009. Sævar Þór var valinn í lið ársins í 1. deild 2009 ásamt þremur félögum sínum. Auk þess var hann val- inn besti leikmaður deildarinnar af þjálfurum og fyrir- liðum annarra liða. Eftirtaldir aðilar styðja starfsemi Ungmennafélags Íslands: Eskifj örður Eskja hf., Strandgötu 39 Neskaupstaður Rafgeisli Tómas R. Zöega ehf., Hafnarbraut 10 Stöðvarfj örður Steinasafn Petru, Sunnuhlíð Höfn í Hornafi rði Sveitafélagið Hornafj örður, Hafnarbraut 27 Selfoss Árvirkinn ehf., Eyravegi 32 Búnaðarfélag Grafningshrepps, Villingavatni Búnaðarsamband Suðurlands, Austurvegi 1 Dýralæknaþjónusta Suðurlands, s. 482-3060, Stuðlum Fossvélar ehf., Hellismýri 7 Framsóknarfélag Árnessýslu, Heiði Grímsneshreppur og Grafnings- hreppur, Stjórnsýsluhúsinu Borg Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps, Vorsabæjarhjáleigu Kvenfélag Hraungerðishrepps Ræktunarsamband Flóa og Skeiða, Gagnheiði 35 Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Suðurlandsskógar, Austurvegi 3 Veitingastaðurinn Menam, Eyrarvegi 8 Hveragerði Dvalarheimilið Ás, Hverahlíð 20 Eldhestar ehf., Völlum Sport –Tæki ehf., Austurmörk 4 Þorlákshöfn Fiskmark ehf., Hafnarskeiði 21 Grunnskólinn í Þorlákshöfn Járnkarlinn ehf., Hafnarskeiði 28 Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarbergi 1 Stokkseyri Kvenfélag Stokkseyrar Laugarvatn Menntaskólinn að Laugarvatni Hella Fannberg ehf., Þrúðvangi 18 Suðurprófastsdæmi, Fellsmúla 1 Hvolsvöllur Búaðföng Hvolsvelli, Bakkakoti 1 Krappi ehf., byggingaverktakar, Ormsvöllum 5 Kvenfélagið Hallgerður, Eystri–Torfastöðum I Rauði kross Íslands, Litlagerði 16 Upplýsingamiðstöðin Hvolsvelli, Hlíðarvegi 14 Vík Mýrdalshreppur, Austurvegi 17 Vestmannaeyjar Hamarskóli Ísfélag Vestmannaeyja hf., Strandvegi 28 Vestmannaeyjabær, Ráðhúsinu Vinnslustöðin hf., Hafnargötu 2 www.ganga.is

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.