Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.2010, Side 39

Skinfaxi - 01.02.2010, Side 39
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 39 Íslenska landsliðið í handknattleik náði frábærum árangri á Evrópumótinu sem fór fram í Austurríki í janúar á þessu ári. Eftir rólega byrjun í fyrstu leikjunum sýndi liðið mikinn styrk, lagði hverja stórþjóðina af annarri að velli, og áður en yfir lauk stóð liðið á verðlaunapalli með bronsverð- laun. Evrópumótið er sterkasta mótið sem haldið er og því er árangur landsliðsins ein- hver sá besti sem liðið hefur náð. Árangur liðsins í Evrópukeppninni er ekki síðri en silfurverðlaunin á Ólympíuleikunum í Peking 2008. Landsliðið okkar virðist vaxa með hverri raun og ljóst að gífurleg undir- búningsvinna skilar þessum árangri. Nær allir leikmenn liðsins leika í sterkustu deildum Evrópu og á það eflaust stóran þátt í frábærum árangri á síðustu árum. Óhætt er því að segja að bjart sé fram undan í íslenskum handknattleik. Stór hluti leikmanna er á besta aldri og yngri leikmenn eru svo sannarlega farnir að banka á dyrnar. Guðmundur Guðmundsson landsliðs- þjálfari og aðstoðarfólk hans hafa lagt gríðarlega mikið á sig til að ná þessum árangri. Guðmundur er klókur og ekki síður vel skipulagður þjálfari og þessir tveir þættir gera hann að einum færasta þjálfara í heiminum í dag. Á EM í Austurríki var það öðru fremur sterk liðsheild sem lagði grunninn að bronsverðlaunum íslenska liðsins. Nokkr- ir leikmenn liðsins náðu sér einkar vel upp á mótinu. Í þeim hópi var Arnór Atlason sem skoraði 41 mark í átta leikjum og var þriðji markahæsti leikmaður keppninnar. Arnór átti framúrskarandi mót og á svo sannarlega glæsta framtíð fyrir höndum. Hann verður 26 ára gamall í sumar og á að baki 89 landsleiki. Frammistaða hans á EM vakti mikla athygli en nokkur félög hafa lýst yfir áhuga á að fá þennan snjalla leikmann í sínar raðir. Arnór þarf ekki að fara langt til að sækja hæfileikana en faðir hans, Atli Hilmarsson, er í hópi bestu hand- knattleiksmanna sem Ísland hefur átt. Atli lék um árabil sem atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni. Aðspurður hvort árangur landsliðsins á EM hefði komið honum á óvart var svarið einfalt: „Nei, það kom okkur í liðinu alls ekki á óvart. Við vissum alveg hvað við vorum góðir og ef við næðum okkur á strik gæti allt gerst. Við sýndum með frammistöðu okkur á Evrópumótinu að silfurverðlaun- in á Ólympíuleikunum í Peking voru eng- in heppni,“ sagði Arnór Atlason í spjalli við Skinfaxa. Arnór vissi vel fyrir mótið að það myndi mæða mikið á honum því Logi Geirsson hafði verið lengi frá vegna meiðsla. „Já, ég náði mér vel á strik í mótinu. Ég var heill í mótinu og það hafði ekki lítið að segja. Læknar og annað teymi íslenska liðsins vinna geysilega gott starf og eiga ekki síður þátt í góðum árangri liðsins síðustu misseri,“ sagði Arnór. Arnór sagði það ekki sjálfsagðan hlut að ná toppárangri á stórmóti þótt liðið sé sterkt. Það yrði rosalega margt að ganga upp svo að það gengi eftir. Það hefði orð- ið reyndin á EM í Austurríki og það skilaði liðinu bronsverðlaunum. „Við erum langflestir á góðum aldri og því tel ég að liðið taki ekki miklum breyt- ingum fyrir heimsmeistaramótið í Svíþjóð á næsta ári. Það var gríðarlega mikilvægt að við tryggðum okkur þangað inn í kjöl- far góðs árangurs í Austurríki.“ Þegar Arnór var inntur eftir því hvað hann teldi vera lykilinn að þessum frá- bæra árangri liðsins í síðustu tveimur mótum sagði hann stóran þátt vera hve margir leikmenn liðsins leika í sterkustu deildum Evrópu. „Það hefur mikið að segja að nær allir leikmenn liðsins eru á mála hjá mjög sterkum liðum í sterkum deildum í Evrópu. Svo má ekki gleyma þætti þjálfar- ans. Hann hefur unnið geysilega vel og afraksturinn er eftir því.“ Skömmu fyrir páska samdi Arnór við danska liðið AG København sem varð til við sameiningu FCK og AG. Snorri Steinn Guðjónsson mun einnig leika með liðinu. Arnór hafði úr tilboðum frá Þýskalandi, Spáni og Frakklandi að velja, en ákvað að lokum að skrifa undir samning við AG København. Þess má og geta að Guð- mundur Þ. Guðmundsson, landsliðs- þjálfari í handknattleik, verður yfirmaður íþróttamála hjá þessu nýja liði. Arnór er aðeins 26 ára gamall og hefur því ekki náð hátindi sínum sem hand- knattleiksmaður. „Ég á mikið eftir ef allt gengur upp hjá mér og ég á eftir að bæta mig enn frekar. Það er ofsalega gaman í handboltanum þegar vel gengur. Landsliðinu gengur flest í haginn um þessar mundir. Þegar vel gengur með því er þetta rosalega gaman,“ sagði Arnór Atlason landsliðs- maður að lokum í spjallinu við Skinfaxa. Arnór Atlason sló rækilega í gegn á EM: Vissum alveg hvað við vorum góðir Íslenska hand- knattleikslands- liðið með brons- verðlaun á Evrópumótinu í Austurríki.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.