Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2010, Page 22

Skinfaxi - 01.05.2010, Page 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Sveitarfélagið Borgarbyggð verða staði en um frekari upplýsingar vísast á vef upplýsinga- og kynningar- miðstöðvar Vesturlands í Borgarnesi: www.ukv.is. Eldborg, formfagurt eldfjall sem er í Kolbeinsstaðahreppi hinum forna og er gengið á hana frá Snorrastöðum, sjá www.snorrastadir.com. Fjall eins og Eldborg myndast þegar þunnfljót- andi kvika kemur upp um kringlótt gosop í fremur stuttum gosum og án kvikustrókavirkni (flæðigos). Umhverfis gosopið hlaðast upp brattir gígveggir úr hraunslettum. Hítardalur er forn sögustaður og þar er einstök náttúrufegurð. Borg á Mýrum er rétt við Borgarnes. Þar bjó Skalla-Grímur Kveldúlfsson og síðar Egill sonur hans. Á Borg er falleg sögufræg kirkja og minnismerkið Sonatorrek eftir Ásmund Sveinsson. Borgarnes byggðist fyrst á 19. öld og er í fornum sögum kallað Digranes. Bæjarstæðið þykir einkar fallegt þar sem skiptast á klapparholt og mýra- flákar. Nú búa um 2000 manns í Borg- arnesi og fjölgar þeim ört. Í bænum eru nokkrir þekktir sögustaðir úr Egils sögu, s.s. Sandvík, haugur Skalla-Gríms og Brákarsund. Þar starfar Landnáms- setur. Rétt norðan við Bifröst í Norðurárdal eru tveir gígar, Stóra- og Litla Grá- brók. Sú litla hvarf að mestu við fram- kvæmdir en sú stóra rís formfögur fast við þjóðveginn. Þriðji gígurinn er vest- ar og heitir Grábrókarfell. Hraun úr gígunum þekur stóran hluta Norðurár- dals. Þetta er sérlega fallegt útivistar- svæði. Reykholt í Borgarfirði er frægur sögustaður þar sem Snorri Sturluson bjó og var hálshöggvinn árið 1241. Þar er nú fræðastofnunin Snorrastofa sem helguð er minningu Snorra. Í Reyk- holti er margt fleira að sjá, s.s. nýja og reisulega kirkju, en gamla kirkjan á staðnum stendur enn og hefur verið gerð upp og opnuð almenningi sem safn. Á staðnum er rekið heilsárshótel. Húsafell er útivistarperla í nálægð Eiríksjökuls og Langjökuls. Þar eru golf- völlur og sundlaug auk annarrar þjón- ustu við ferðamenn (www.husafell.is). Frá Húsafelli er ekki langt í Hraun- fossa og Barnafoss auk hellanna Surtshellis og Víðgelmis en í þann síðarnefnda er farið frá bænum Fljóts- tungu í Hvítársíðu. Páll Guðmundsson á Húsafelli er þjóðkunnur orðinn fyrir listsköpun sína og hugmyndaauðgi. Hann notar umhverfi Húsafells mikið í list sinni. Hvanneyri er forn landnámsjörð. Þar hefur verið starfræktur búnaðarskóli allar götur síðan 1889 og þar hefur Landbúnaðarháskóli Íslands nú aðal- starfsstöð sína. Þar er einnig rekið Ullar- sel og Búvélasafn, hvort tveggja mjög vinsælt af gestum og gangandi (www.ull.is og www.buvelasafn.is) Í sveitarfélaginu eru margar þekkt- ar laxveiðiár, s.s. Haffjarðará, Hítará, Langá, Norðurá, Þverá, Hvítá og Grímsá, svo að nokkrar séu nefndar. Brúðuheimar Brúðuheimar eru lista- og menningar- miðstöð tengd brúðuleiklist þar sem leiksýningar, námskeið, safn og kaffi- hús mætast á fallegum stað í líflegu andrúmslofti. Brúðuheimar hófu göngu sína í vor og hafa aðsetur að Skúlagötu 17 í Borgarnesi. Það er ævintýri líkast að ganga í gegnum leikbrúðusafn Brúðuheima. Þar gefur að líta fjöldann allan af áhugaverðum persónum, fyrirbrigð- um og forynjum. Margir góðkunn- ingjar eru þar á ferð, eins og Pappírs- Pési, Einar Áskell og Litli, ljóti andar- unginn. Einnig eru þar varhugaverðar verur eins og skógarnornirnar úr Ronju ræningjadóttur. Fyrir börnin er stöð- ugt eitthvað áhugavert að sjá og upp- götva á meðan þeir fullorðnu dvelja og dást að því ótrúlega handverki sem er undirstaða þeirra stórglæsi- legu muna sem er að finna á safninu. Safnið er að hluta til gagnvirkt og hafa ungir sem aldnir gaman af því að prófa sig í brúðuleik um stund. Leikhús Brúðuheima býður upp á fjölbreyttar brúðuleiksýningar, bæði fyrir börn og fullorðna. Boðið er upp á barnasýningar flestar helgar og full- orðinssýningar eru í boði fyrir hópa og erlenda ferðamenn. Sýningar fyrir erlenda ferðamenn eru bæði í boði á ensku og þýsku, auk þess sem Brúðu- heimar bjóða upp á sýningar án orða. Í góðu brúðuleikhúsi gerist eitthvað sem er töfrum líkast. Til að brúðan vakni til lífsins þarf brúðuleikarinn að vera fær í sínu fagi og áhorfendurnir þurfa að „trúa“ á leikarana þó að þeir séu meðvitaðir um að leikararnir eru bara „brúður“. Með þessari samvinnu fer áhorfandinn að skynja hjartslátt leikarans og dýpstu tilfinningar hans, þrátt fyrir að leikarinn hangi í örþunn- um silkiþráðum og sé gerður úr tré- kubbum. Skallagrímsgarður Skallagrímsgarður er skrúðgarður í Skallagrímsdal í Borgarnesi. Ung- mennafélagið Skallagrímur og Kven- félag Borgarness stóðu í upphafi að framkvæmdum í garðinum með full- Barnafoss í Borgarfirði. Gamli héraðsskólinn í Reykholti. Brúðuheimar í Borgarnesi.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.