Skinfaxi - 01.05.2010, Síða 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði
var haldin í annað sinn á Laugum
7.–9. apríl sl. Um 50 þátttakendur
voru á ráðstefnunni sem gekk
mjög vel. Mikil ánægja var með
það sem fram fór.
Þema ráðstefnunnar var Lýðræði
og mannréttindi og var unnið með
verkefni úr bókinni Kompás sem
er handbók um lýðræði og mann-
réttindi og kom út í íslenskri þýð-
ingu í lok síðasta árs. Þátttakendur
skiptu sér á vinnustofur þar sem
þeir gátu valið á milli ræðumennsku
og fundarskapa og kynningu á
Evrópu unga fólksins þar sem þátt-
takendur fengu að spreyta sig á að
sækja um styrk. Góður rómur var
gerður að báðum vinnustofunum
og vildu þátttakendur helst ekki
hætta.
Í hópastarfinu var meðal annars
farið yfir samvinnu ólíkra aðila svo
sem fjölmiðla, félagasamtaka og
stjórnvalda. Jörgen Nilsson bauð
upp á hópefli þar sem þátttakend-
um var skipt í tvo flokka og þurftu
þeir að smíða lendingarbúnað fyrir
egg. Báðum hópunum tókst að
koma egginu sínu óbrotnu til jarð-
ar, um 3–4 m fallhæð (ofan úr
áhorfendastúkunni í íþróttasalnum
á Laugum).
Hjörtur Ágústsson frá Evrópu
unga fólksins, EUF, kynnti verk-
efnið og lét þátttakendur hanna
umsókn. Stefán Bogi Sveinsson,
UÍA- og Útsvarskempa, kenndi
ræðumennsku og fundarstjórn.
Í lok fyrirlestrarins kenndi hann
þátttakendum lykilatriðin að baki
góðu handabandi.
Í lok ráðstefnunnar samþykktu
þátttakendur ályktun til stjórn-
valda og voru miklar og góðar
umræður um hvernig ályktunin
skyldi hljóða. Greinilegt er að þetta
unga fólk sem sat ráðstefnunna
veit hvað það vill og er tilbúið að
leggja sitt til samfélagsins.
„Ungt fólk og lýðræði“
Ályktun ráðstefnunnar:
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði, haldin á Laugum í Sælingsdal 7.– 9.
apríl 2010, beinir því til stjórnvalda að bæta þurfi upplýsingaflæði til
ungs fólks og að hlustað verði á rödd þeirra og að áhugi sé gagnkvæmur.
Hafa verður samráð við ungt fólk þegar teknar eru ákvarðanir sem varða
málefni þeirra eins og segir í 12. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Fjölmörg dæmi eru til um að ungt fólk sé hunsað þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir til að ná eyrum stjórnvalda.
Ein leið til að auka aðkomu ungs fólks að ákvarðanatöku er að sveitar-
félög stofni ungmennaráð. Í öllum sveitarfélögum á landinu er að finna
ungt fólk sem á rétt á því að á það sé hlustað. Við viljum að stjórnvöld
bindi í lög að sveitarfélög stofni ungmennaráð. Jafnframt skorum við á
sveitarfélög, sem hafa ekki enn stofnað ungmennaráð, að gera það eins
fljótt og mögulegt er og fulltrúar þess verði frá sem breiðustum hópi,
s.s. æskulýðs- og íþróttafélögum auk framhaldsskóla og grunnskóla.
Allir hafi jöfn tækifæri til setu í ungmennaráði burtséð frá menningar-
og félagslegum bakgrunni. Tryggja þarf gagnkvæmt samstarf og sam-
skipti ungmennaráða og sveitarfélaga og kynna starfsemi þeirra vel fyrir
ungu fólki til að tryggja áhuga og þátttöku. Einnig teljum við nauðsyn-
legt að sveitarfélög fylgi eftir virkni ungmennaráða, sýni starfsemi þeirra
áhuga og hrindi hugmyndum þeirra í framkvæmd. Ráðstefnan leggur
sömuleiðis áherslu á að gætt sé jafnræðis þegar stjórnvöld úthluta
styrkjum til ungmennastarfs.
Ungt fólk hefur mismunandi áhugamál og mikilvægt er að öll upp-
byggileg starfsemi ungs fólks njóti stuðnings stjórnvalda. Þátttaka unga
fólksins er ekki síður mikilvæg svo að þeir sem eldri eru fái notið hinnar
einstöku sýnar ungs fólks á okkar nánasta umhverfi.