Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2010, Síða 34

Skinfaxi - 01.05.2010, Síða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Vinnum saman Græðum Ísland Landgræðslufræ Ef þú þarft að græða mela og rofabörð eða rækta fallega grasflöt eigum við fræið handa þér. Ráðgjöf um val á fræi við mismunandi aðstæður. Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti, 851 Hellu Sími 488-3000, símbréf 488-3010, land@land.is, www.land.is Kynning á heilsu- eflingu og útivist Kynningin „Heilsuefling og útivist“ fór fram í Menntaskólanum á Ísa- firði í apríl og heppnaðist með ágætum. Fulltrúi frá Ungmennafélagi Íslands var á staðnum og kynnti m.a. nýju vefsíðuna ganga.is ítar- lega. Á henni er að finna upplýsing- ar um gönguleiðir en hlutverk vef- síðunnar er m.a. að stuðla að enn frekar uppbyggingu gönguleiða á Íslandi og aðgengi að þeim. Lýðheilsustöð var með kynningu á heilsueflingu í framhaldsskólum sem er verkefni sem stöðin er að fara að setja af stað. Aðstandendur heilsueflingar í Ísafjarðarbæ fjölluðu um það sem unnið hefur verið með á svæðinu og buðu upp á heilsudrykki og kennslu í stafagöngu. Úr hreyfingunni Ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar: Gróska í íþróttastarfi í Fjallabyggð Fyrsta ársþing Ungmenna- og íþróttasam- bands Fjallabyggðar, UÍF, var haldið í Tjarnar- borg á Ólafsfirði þann 15. júní sl. Mjög vel var mætt á þingið og gengu þingstörf vel. Í sambandinu eru fjórtán félög og eru iðk- endur um 1100 talsins. Helga Guðrún Guð- jónsdóttir, formaður UMFÍ, og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, sátu þingið. Stjórnarkjör fór fram á þinginu en stjórn- in á eftir að skipta með sér verkum. Eftir- taldir einstaklingar skipa stjórnina: Guðný Helgadóttir, formaður, Róbert Haraldsson, Hlynur Guðmundsson, Sigurður Gunnars- son, Sigurpáll Gunnarsson, Helga Kristín Einarsdóttir og Gíslína Salmannsdóttir. „Við munum áfram vinna að frekari upp- byggingu íþróttamála í Fjallabyggð. Félögin innan sambandsins eru vel rekin og það er óhætt að segja að mikil gróska sé almennt í íþróttastarfi í Fjallabyggð. Það er bjart fram undan hjá okkur,“ sagði Guðný Helgadóttir. Frá þingi Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar. Mynd til vinstri: Guðný Helga- dóttir, formaður UÍF.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.