Ægir - 01.06.1935, Side 4
118
Æ G I R
Dýptarmælir Sigurdsons,
eða Sigurdsons Patent.
Jón P. Sifíurðsson.
Svo heitir merkilegt áhald, sem íslend-
ingurinn J. P. Sigurðsson fann upp og
hefur í fjölda mörg ár verið notað í
skandinaviskum skipum, og þóttafbragð.
Þeir munu fáir, sem kannast við Sig-
urðson og fáir, sem heyrt hafa hans get-
ið og hefur hann þó verið þjóð sinni lil
jafnmikils sóma á sínn sviði og margir
aðrir íslendingar, sem ávallt er verið að
minna á í blöðum, og óhætt er að full-
yrða, að enginn íslenzkur sjómaður hafi
rutt sér glæsilegri hraut í framandi landi
en hann.
Arið 1882 fór hann í siglingar og var
fyrst í förum á skonnortum, sem voru
á Norður- og Austursjávarferðum þang-
að til árið 1887. Þá réðst hann sem há-
seti á barkskipið »Nanna« frá Fanö, sem
þá lá í Hamhorg; sigldi skip það aðeins
til landa í hitaheltinu og á því var Sig-
urðsson í 4 ár og af þeim 2V„ ár háts-
maður og stóð fyrir vöku (Vagt) skip-
stjórans. Er tilDanmerkurkom.gekk hann
á stýrimannaskólann í Fanö og tók próf
1891, en skipstjórapróf tók hann árið
eftir. Að prófi loknu varð hann fyrsti
stýrimaður á stóru skipi frá Fanö; voru
þá Fanö skipin mörg, llest langferða-
skij) og lonnatal þeirra næst á eftir Kaup-
mannahafnar, en nú er ekkert skip eflir.
Arið 189(i var honum boðin skipstjóra-
staða á stóru seglskipi og var það upp-
haf skipstjórnar hans á Fanöskipunum.
Ilið síðasta skip sem hann stjórnaði var
bryggskipið »Dorane« og álti hann hluta
í því skipi og hélt því, að mestu, á Af-
ríku og Brazilíuferðum. Árin 1904 og
1905 sigldi skipið undir Brazilíu fána,
en til þess varð Sigurðsson að taka skip-
stjórajjröf í Brazilíu og stóðst það. En
svo stóð á, að illt var að fá farma á
venjulegum viðkomustöðum og seglskij)
áttu þá örðugt uppdrátlar ; gerði Sigurðs-
son því þessa tilraun, því með strönd-
um Brazilíu var nóg að flytja og vel
horgað fyrir flutning á förmum, enskil-
yrði voru, að skipstjóri liefði próf, tekið
í Brazilíu og að skipshöfn væru Brazi-
líumenn. Þegar hann byrjaði ferðir, voru
margar hafnir grunnar, og að eins færar
minni skipum, (brigg hans var 300 lest-
ir), en ekki leið á löngu þar til tekið var
að dýpka þær, svo gufuskip gætu at-
hafnað sig og voru þau látin sitja fyrir
flutningum eftir það. Sigursson lét þá
af þeim ferðum og' hélt heim.
Að eins einn danskur skipstjóri reyndi
að taka próf í Brazilíu, skömmu eftir að
Sigurðsson lauk prófi þar, en hann féll.
Próf þetta fór fram á Portúgisisku. Árið
1906 seldi hann skip silt í Hamborg, fór