Ægir - 01.06.1935, Qupperneq 5
Æ G I R
119
heim og kom á fól verkstæði, þar sem
nppfynding hans (dýptarmælirinn) var
framleidd og stóð hann fyrir því verk-
stæði í 17 ár og afgreiddi pantanir hinna
mörgu útgerðarfélaga, sem hann hafði
viðskifti við, auk fjölda annara skipa.
Hann leitaðist við að selja mælana eins
ódýrt og unnt var, svo sem flestir gætu
eignast þá, ogaldrei bárust honum kvart-
anir um ónákvæmni eða, að þeir sýndu
ekki rétt dýpi og það eru góð meðmæli.
í 12 ár var Sigurðsson forstöðumað-
ur og kennari við stýrimanna og fiski-
skipstjóraskólann i Esbjerg, en 1921 var
honum lioðin forstjórastaðan við sjó-
mannaháskólann (Sömandsliöjskolen) í
Svendborg. Sá skóli og stýrimannaskól-
inn í Esbjerg munu njóta styrks frá sjó-
mannatrúboði Danmerkur, og hafa þeir
eftirlaunasjóð fyrir starfsmenn sína.
Arið 1933, lét Sigurðsson af starfi sínu
vegna vanheilsu og er undravert, hve
lengi hann gat gengl forstöðu Sjómanna-
háskólans, því þar var hann allt i öllu.
Hann var skólastj. og kennari, var ritari,
bókfærslumaður, gjaldkeri, húsbóndi og
fjárhaldsmaður. Stjórn skólans var ekki
í nágrenni og gat hann því ekki náð til
hennar, þegar skjót úrlausn mála var
nauðsynleg, en hún vissi, að honum
mátti trúa og allt fór vel úr hendi. Hann
segir svo sjálfur. Forstaða háskólans var
unaðsríkt starf, sem liélt mér ungum í
anda, þótt árin ynnu að sliti líkamans.
Æskulýðurinn, sem í kringum mig var,
þau 25 ár, sem ég hef verið kennari, hef-
ur fært mér gleði og gæfu.
Traust það og álit, sem þessi íslenzki
sjómaður hefur nolið í lífinu, er mikið.
Hann hefur einu sinni leitað sér atvinnu;
var það í Hamborg 1887, er liann réð-
ist háseti á »Nanna«. Til annara starfa,
hefur hann verið falaður, eða stöður
hafa verið lionum l)oðnar, og hvarvetna
hefur hann komið fram, sem hinn rétti
maður á réttum stað.
Hinn 30. marz sl. varð Sigurðsson 67
ára, kona hans er frá Fanö og þar kunna
þau hjón bezt við sig. Hann hefur á-
valt munað eftir ættjörðu sinni, þótt fá-
ir þekki hann hér, en við nafn hans
kannast sjófarendur Norðurlanda vel,
vegna hinnar snilldarlegu uppfyndingar
lians, dýptarmælisins. Hvorl honum hefði
orðið nokkuð úr hæfileikum sínum hér
á landi, mun mjög hæpið, en í framandi
landi var lekið eftir honum, og þar gat
hann nolað þá krafta og greind, sem
guð hafði gefið honum, sér og öðrum til
gagns og gleði og ættjörðu sinni til sóma.
Jón P. Sigurðsson er fæddur 30. marz
1868, að Auðólfsstöðum í Húnavatnssýslu.
Foreldrar hans voru Sigurður Helgason
trésmíðameistari og móðir, Guðrún Jóns-
dóttir, faðir hennar, síra Jón Eiríksson
á Undirfelli í Vatnsdal. Fyrv. landlækn-
ir Guðm. Björnson og ,1. P. Sigurðsson
eru náskyldir.
Það var ekki ætlunin, að hann yrði
sjómaður, en 14 ára gamall, fékk hann
að fara lil Ivaupmannahafnar með jakt-
inni »Palma«, skipstjóri var Lemann frá
Bergen; ílutti skipið vörur, fyrir kaupm.
Jóhann Möller á Blönduósi og átti .1. P.
Sigurðsson að koma heim með sama
skipi, en svo fór, að hann varð eftir í
Kaupmannahöfn og dvaldi þar eilt ár
og leit svo út, að löngun til sjóferða
væri horfin, en hún vaknaði á ný, hann
réðist á skip og sjómannalífið býrjaði.
G. júní 1935.
Sveinbjörn Egilson.
Leiðrétting’.
í 5. tbl. Ægis, hefur vandræða villa orðið.
A bls. 99, 16. línu að ofan, er afli Reykjavik-
urtogaranna talinn 3A60.200 kíló, en á að vera:
8A60.200 kg. eins og sézt á yfirliti 15. maí, bls.
107.