Ægir - 01.06.1935, Qupperneq 10
124
Æ G I R
Aflamaðurinn
Guðmundur Bjarnason
70 ára 24. júní 1935.
Guðmundur Bjarnason.
Guðmundur Bjarnason, ávallt kennd-
ur við Bjarnabæ í Reykjavík, er fædd-
ur 24. júni 1865 og voru foreldrar hans
Bjarni Guðmundsson og Gróa Stefáns-
dóttir, bæði dáin hér í Reykjavík.
Guðmundur kom hingað til bæjarins
árið 1882, þá 17 ára að aldri og byrjaði
sjómennsku sína með því að stunda sjó-
róðra á Suðurnesjum; var hann þar eitl
ár og mun þá þegar hafa komið í ljós
hve fiskinn hann var á handfæri; mun
það hafa ýlt undir hann til þess að ráð-
ast á þilskip.
Sneri hann sér þá til iitgerðarmanns
Geirs Zoéga og réðst fyrst á »Gylfa« mcð
skipstjóra Guðmundi sál. Kristjánssyni,
síðan var hann 5 úthöld með sama skip-
stjóra, á kútter »Margréti« en þar urðu
skipstjóraskipti, meðan Guðm. Bjarna-
son var á skipinu, og tók við Finnur
Finnsson; var »Margrét« þá komin í eigu
kaupmanns Th. Thorsteinson. Með Finni
var hann í 8 úthðld, eða alls 13 úthöld
á sama skipi. Ekki þurfti þennan ára-
fjölda til þess að sanna, hve stórtækur
hann var við fiskdrátt, því þegar á fyrstu
árum hans á skútum, var venjulega
spurt, u'm leið og sagt frá afla skips þess,
sem Guðmundur var á: Ilvað dró Guðm.
í Bjarnabæ?Á skútuin héðan voru menn
úr öllum fjórðungum landsins, og báru
þeir fregnir heim í sín héruð, um þenn-
an mikla fiskimann, svo íslendingar
könnuðust eins vel við hann og t. d.
Christiansen á Láru, Howgaard á Thyru
og íleiri stórkalla. Að vísu var honum
ekki hoðið upp á glas af portvíni, hjá
heldri mönnum, þegar hann steig af skips-
fjöl, en hann álti sína vini, sem bæði
huðu honum glas og vildu með honum
vera, þótt hann væri í sjógallanum, og
ekki stóð á honum að veita, ef svo har
undir. Hákarlaveiðar stundaði hann á
skipinu »Matthildi« með skipstjórunum
Þorláki Teitssyni og Stefáni Pálsssyni, en
liætti því, vildi liafa örari fisk. Á þorsk-
veiðum var hann eftir það á eftirtöld-
um skipum : á »Victory«, »Emilíu«,»Haf-
fara«, »Gretu«, »Harry«, »Nyanza«, »Sig-
ríði«, »Björgvin«, »Seagull«, »Arthur og
Fanny«, »Keflavík«, »Birni Ólafssyni«,
»Iho« og »Veiðihjöllunni«. Veit hann þvi
hvernig kútterarnir sigldu. Auk þess var
hann 6 sumur á handfæraveiðum á Isa-
firði, 2 úthöld frá Bildudal, 1 úthald frá
Flatey á Breiðafirði og 4 suniur við sjó-
róðra á Austfjörðum. Sem dæmi um
drátt hans má nefna, að eitt úthald var
afli á skipinu »Margréti« 74 þús. fiskar;
undir línu voru 23 menn. Af því hafði
Guðm. Bjarnason dregið 8850 fiska.