Ægir - 01.06.1935, Síða 26
140
Æ G I R
Sjá þóttist þá Guðmundur að liann
mundi ekki ná lendingu á Sandi og bjóst
að hleypa að Gufuskálum. Er það litlu
vestar en Sandur, en lending verri. Þeir
sem hleyptu að Gufuskálum, aðrir en
Guðmundur, voru Sigurður nokkur Sig-
urðsson kendur við Bug, og Brynjólfur
Oddsson, hóndi úr Rúffeyjum, en hinn
þriðji Jónas, frá Skarði á Skarðsströnd.
En það er frá Guðmundi að segja, að
hann lagðist fyrir framan lendinguna á
Gufuskálum, því að ólendandi þótti. Er
og sagl að fremur færi hann ókunnug-
lega, og hafði liann þó Ivo háseta frá
Hjallasandi, þá er kunnugir voru.
Höfðu þeir skamma stund legið, er
menn úr landi sáu öldurið mikið taka
sig' upp fyrir framan skipið oghrautþað
yfir það, stafna milli, en (i menn lók
það út af skipinu. Var eitt þeirra kona,
Rannveig að nafni, en maður hennar er
Jón hét, sat eftir við annan mann. Þótt-
ust menn sjá úr landi, að hann hélt sér
háðuin höndum, en hafði tóhaksbauk
sinn milli tannanna. Gekk nú brátt ann-
að rið yfir skipið og tók það Jón út, en
hið þriðja tók hinn síðasta. Aldrei fór
báturinn af kjölnum ogvar honumhjarg-
að þegar veðrinu slotaði (Guðm. þessi
var bóndasonur úr Bjarneyjum, en móð-
ir hans hét Kristín Pétursdóttir hónda
úr Skáleyjum).
Nú er að segja frá Sigurði úr Bug,
þeim sem áður er nefndur, að hann
lagðist eins og Guðmundur fyrir framan
Gufuskála, en fyrir framan dýpra lend-
ingarsundið. Þar kom og Brynjólfur úr
Rúffeyjum og töluðust þeir við. Spurði
Sigurður hvort nú væri ekki lag. Neitaði
Brynjólfur því og kvað þar ekkert lag
vera, og ekki kvaðst hann þar að leggja
Sigurður ællaði þó að lag væri og lagði
á sundið, en þegar hvolfdi. Bróðir Sig-
urðar komst á kjölinn og gat náð til
hans og annara tveggja og Jjorgið þeim
með sér á kjölinn, en hinir fjórir urðu
þegar viðskila við bátinn og drukknuðu
þar. Gufuskálamenn höfðu nú horftupp
á tvo skipstapa, hvorn á fætur öðrum,
og eggjuðu nú fast þá, sem færastir þóttu
að reyna að bjarga mönnum þessum, er
á kilinum voru. Voru nú nokkrir þeir
hraustustu vaðbundnir og óðuútíbrim-
ið. Freistuðu þeir að kasta lóðabelgjum
til skiphrotsmannanna, og lókst þeim
eftir mikið vos, að ná þeim með lífi í
land.
Jónas frá Skarði hleyptí í Skarðsvík.
Þar tók út menn alla nema einn. Hann
rétti Jónasi ár um leið og hann bar
aftur með skipinu og i)arg honum svo.
Þá komu þar Gufuskálamenn aðoggátu
með harðfylgi borgið þeim, nema einum,
Pétri Örnólfssyni úr Ólafsvík er fórst þar.
Þar lenti og Brynjólfur úr Búffeyjum
og björguðu lionum Gufuskálamenn, því
gætur höfðu þeir á skipum, þvíaðhvar-
vetna var ólendandi.
Framh.
Aegir
a montlily review of ihe fislieries and fisli
trade of Iceland.
Published hy : Fiskifélag íslands (The
Fisheries Association oflcelandj Reykjavík.
Results of the Icelandic Codfisheries
from the beginning of the year 1935 to
the 159} of June, calculated in fully cured
state:
Large Cod 35.671, Small Cod 9.209,
Saithe 891, Haddock 90, total 55.861 tons.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson
Rikisprentsm. Gutenberg.