Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 52
ÆGIR
Hf. Eimskipafélag Islands
Aðalfundur
Áðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður haldinn í Kaupþings-
salnum í húsi félagsins í Reykjavík laugardaginn 8. júní 1940 og hefst kl. 1 e. h.
DAGSKRA
1. Stjórn félagsins slcýrir frá hag þess og framkvæmdum á
liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári,
og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endur-
skoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1939 og efna-
hagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum
stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra,
sem úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fund-
inum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félags-
ins í Reykjavík, dagana 5. og 6. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 10. janúar 1940.
Stjórnin.