Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 24

Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 24
18 Æ G I R Jiöndum um að stofna til síldarleitar með flugvél. Var flugvélin TF. Örn leigð til sildarleitarinnar, en flugmaður liennar var Örn Jolinson og vélainaður Brandur Tómasson. Stjórn sildarleitarinnar var falin sérstakri nefnd, er skipuð var Sveini Benediktssyni, Ricliard Thors og Sigurði Kristjánssyni, og liafði Sveinn Benediktsson aðalstjórnina á hendi. Leitinni var lialdið upjii frá 20. júni til ágústloka með flugvélinni TF. Örn, en frá 1.—11. sept með landflugvél TF. Sux. — Kostnaðinn við síldarleitina báru eft- irtaldir aðilar, liver að Rikissjóður, síldarverksmiðjur ríkisins, Síldarútvegs- nefnd og síldarverlcsmiðjur einstakra manna og félaga. Almennt er það álit síldveiðimanna, að mjög milíið gagn liafi orðið að síldar- leit flugvélarinnar í sumar og sjálfsagt sé að lialda leitinni áfram i framtið- inni. Bræðslusíldaraflinn á öllu landinu varð alls 1 169 830 lil. og er það 360 586 lil. minna en síðastliðið ár, en rúmlega 1 milljón hl. minna en árið 1937. Þegar á þetta er litið og livað skipunum fjölg- aði, er þátt tóku í veiðinni, verður auð- sýnt, að sumarið verður talið með Jiin- um veiðitregustu síldarsumrum. Útflutningsverðmæti framleiddra bræðslusíldarafurða á öllu landinu nemur þetta ár um 14 600 þús. kr og er það um 5 400 þús. kr. meira en næsta ár á undan. Fyrst á árinu var mjög lítil eftirspurn eftir síldarlýsi. 1 byrjun ársins var verð á síldarlýsi 11-0-0 £ pr. smál. cif., en fór hækkandi. Nokkrar verksmiðjur seldu i marzmánuði síldarlýsi fyrirfram, fvrir 13-10-0 £. Síðast í apríl komst verð á síldarlýsi upp í 14-10-0 £ pr. smál. cif. og liélst það i 13-10-0 til 14-10-0 £ þar til stríðið skall á. Þá varð mjög ör verð- liækkun, og eftir það var fatalýsi selt fyrir 60—73 aura norska pr. kg fob. 1 byrjun desember var tanldýsi selt á 60 aura norska pr. kg fob. Af síldarlýsi mun alls hafa verið seldar 13 þús. smál. fyrir- fram, fyrir 13-10-0 og 14-10-0 £ pr. smál. cif. Eftirspurn eftir síldarmjöli óx mjög í byrjun ársins, eða strax eftir að Norð- menn liöfðu selt síldarmjöl sitt fyrirfram til Þýzkalands. Frá ársbyrjun og fram í maí var verðið óbreytt, eða í 10-15-0 £ pr. smál. cif. 1 júnímánuði var selt síld- armjöl til Þýzkalands fyrir 11-2-6 £. Þegar stríðið skall á fór verð á sildar- mjöli einnig mjög hækkandi og er kom- ið var fram i desember voru eftirstöðv- arnar af síldarmjölinu seldar á 280 kr. norskar pr. smál. f. o. b. Eins og tafla II ber með sér, eru síld- arverksmiðjurnar allar þær sömu og árið áður og hafa afköst þeirra i engu ljrevtzt. Þess ber þó að geta, að síldar- verlísmiðjan á Hesteyri var ekki rekin að þessu sinni, og mun það fyrst og fremst liafa átt rætur sínar að rekja til þess, að síldin stóð jafnan mjög austar- lega og svo liins, að Hj alteyrarverk- smiðjan gat tekið við sild viðstöðulaust allt sumarið. Svo jná heita, að Sólbakka- verksmiðjan væri sama og ekkert starf- rækt á þessu sumri, vegna þess að sára- lítið veiddist af sild á vestari hluta veiði- svæðisins. Hjá ríkisverksmiðjunum lögðu alls upp til bræðslu: 1 togari, 18 linuveiða- gufuskip, 73 mótorbátar, 24 „tvílemb- ingar“, 2 „þrílembingar“ og 1 færeyskt skip. Alls varð bræðslusíldin úr þessum 119 herpinótum 333 þús. mál, og feng- ust úr þeim um 7000 smál. síldarlýsi og um 7 500 smál. síldarmjöl. Lætur því nærri að fengizt hafi að meðaltali úr liverju síldarmáli 21 kg lýsi og 22.5 kg

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.