Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 32

Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 32
26 Æ G I R Tafla VIII. Skýrsla um saltfiskútflutninginn 1938 og 1939, eftir innflutningslöndum. 1939 1938 Innflutningslönd: Verkað kg Óverkað kg Verkað kg Óverkað kg Spánn 15 000 » » » Portugal 9 226 860 1 757 000 » 3 250 000 Frakkland » » 2 500 000 » ítalía 4 416 600 6 288 200 4 415 300 8 602 450 Bretland 290 408 6 234 944 8 023 663 9 910 160 Danmörk 252 974 1 571 350 214 950 1 544 350 Noregur 115 850 » 99 215 200 Brazilía 2 851 715 » 2 527 901 » Argentina 893 185 » 1 001 220 » Uruguay 114 800 » 68 265 » Cuba 1 006 750 » 1 324 260 » Grikkland » 2 950 000 » » Bandarikin 9 000 10 393 » 116 100 Önnur lönd 11 650 448 450 5 720 279 280 Samtals 19 204 792 19 260 337 20 180 494 23 702 540 Saltfisksalan. Eins og undanfarin ár hefir sala á salt- fiski svo að segja eingöngu verið i hönd- um Sölusambands isl. fiskframleiðenda. Einstaka menn hafa aðeins selt nokkra smáslatta. Fyrstu mánuði ársins, eðá fram undir vorið, var nokkurnvegin eðlileg eftir- spurn eftir blautfiski, en úr því mátti lieita dauður tími, þar til stríðið skall á. Þá varð snögglega allmikil eftirspurn, en dofnaði þó fljótlega aftur og hélzt svo fram að áramótum. Verð á saltfiski var mjög lágt framan af ári, en i sama mund og gengislækk- unin var gerð, hækkaði það nokkuð i isl. krónum, en þó ekki í sama hlutfalli og' krónan lækkaði, því að einmitt í sama svip lækkaði verðið í markaðslöndunum. Alll fram að stríðsbyrjun má telja að fiskframleiðendur hafi fengið svipað verð og árið áður. Síðasta fjórðung ársins hækkaði verðið nokkuð, svo meðal-út- horgunarverð lil fiskframleiðenda verð- ur hærra en síðastl. ár. Enn þá er ekki vitað með vissu, hve miklu haskkunin nemur. Til Italíu fóru á árinu 10 705 smál., og er það 2 312 smál. minna en 1938. Þess ber að geta, að seinast á árinu voru auk þess seldir tveir farmar til ítalíu, en vegna flutningaerfiðleika komust þeir ekki út fvrir áramót. Þess vegna má telja að salan til Italíu hafi orðið meiri nú en f>æra ár. Af þeim fiski, er fór til Ítalíu, var einn farmur, eða 1 700 smál., seldur gegnum danskan „clearing“, og var 20 % af andvirði þess fisks látið fara upp í greiðslu á innifrosnu fé Dana hér á landi. - Salan til ítalíu var i nákvæmlega sama formi og áður, og fram að striðsbyrjun var verðið svipað og fyrra ár. Eftir stríðið hækkaði fiskur til Italíu, en vörur þar hækkuðu jafnframt að sama skapi. En eins og kunnugt er, þá er verzlun Isl. við Italíu að mestu fastbundin \ið vöru- skipti. Arið 1938 seldu Isl. aðeins 3 250 smál. til Portúgal. Átti það rætur að rekja til

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.