Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 31
Æ G I R
25
tn. og er það 36 924 tn minna en 1938.
Veiði þeirra í ár skiptist þannig, eftir
þvi hvernig síldin er verkuð:
• Algeng söltun ....... 88 233
Matjes söltun ........ 37 557
Krydd söltun ......... 23 474
Öðru visi verkað .. 559
Auk saltsíldaraflans veiddu Norðmenn
nokkuð af síld til hræðslu, eða alls 60
þús. mál, sem síldarverksmiðjan i
Krossanesi keypti til vinnslu. Er það 14
þús. málum minna en síðastl. ár. Verð-
mæti þeirrar síldar, sem Norðmenn
veiddu við Island, er alls talið nema 4.3
milljónum kr., og er það 1.7 millj. kr.
meira en fyrra ár. Talið er að útkoman
á síldarútgerð Norðmanna við Island í
ár, hafi verið frekar góð, eða mun betri
en búizt var við. Gróði útgerðarmanna,
er þátt tóku i veiðunum, mun þó ekki
hafa orðið mikill, en nokkuð jafn, eink-
um hjá þeim, er seldu síldina snemma,
annað hvort til útflutnings eða spekú-
lanta. Það sem saltað var af venjulegri
saltsíld seldist allfljótt til Svíþjóðar.
Eins og tafla VI her með sér tóku
sömu þjóðir þátt í sildveiðunum og síð-
astl. ár og voru alls með 198 skip, og
er það 22 skipum fleira en 1938.
Ufsa- og karfaveiðar.
Ivarfaveiðar stunduðu nú aðeins 3 tog-
arar og' einn þeirra, „Reykjaborg“, að-
eins stuttan tíma, eða 75 daga. „Revkja-
horg“ veiddi um 920 smál. af karfa og
þar af voru 575 smál. brætt um borð, en
hitt var lagt upp í verksmiðjuna á Pat-
reksfirði. Auk karfans fékk „Reykja-
])org“ 43 smál. af þorski i salt. Patreks-
fjarðartogararnir stunduðu báðir karfa-
veiðar allt sumarið og veiddu samtals
3 707 smál. af karfa, en auk þess 367
smál. af þorski í salt. Lifrarfengur Pat-
reksfjarðartogaranna, meðan þeir voru
á karfaveiðum, varð samtals 688 föt.
Samanlagður úthaldstími þessara 3 tog-
ara á karfaveiðum varð 309 dagar. En
síðastl. ár var samanlagður úthaldstími á
karfaveiðum 441 dagur. Meðalveiði á
hvern úthaldsdag hefir farið minnkandi
með hverju ári og varð að þessu sinni
aðeins 15 smál., og er það 4 smál. minna
en fyrra ár, en 12 smál. minna en fyrsta
árið sem karfaveiðarnar voru stundaðar.
Ufsaveiðar stunduðu 14 togarar á ár-
inu í alls 549 daga, og er það 3 togurum
fleira en síðastl. ár. Úthaldstími á ufsa-
veiðum varð nú 90 dögum lengur en
1938. Sá togari er lengst stundaði ufsa-
veiðar var við veiðar í 127 daga, og
veiddi 647 smál. af ufsa til herzlu, 34
smál. af ufsa til flökunar, 60 smál. af
ufsa í salt, 645 smál. af þorski til herzlu
og 107 smál. af þorski í salt. Lifrarfeng-
ur togarans þennan tíma varð 694 föt.
— Harðfiskverkun var aðallega í Hafnar-
firði og Reykjavik, eins síðastl. ár. Alls
var veitt af þorski í herzlu 1 196 smál.
og er það 913 smál. meira en 1938. Af
ufsa til herzlu var veitt 3 421 smál.,
sem er 285 smál. meira en síðastl. ár.
Til herzlu á árinu liafa því alls farið af
ufsa og þorski 4 617 smál. Að þessu sinni
hefir ekki verið flakað af ufsa nema 342
smál., og er það 280 smál. minna en
fvrra ár. — Lifrarfengur ufsatogaranna
varð aHs 4 317 föt.
Af harðfiski liefir verið flutt út á ár-
inu 650 smál. fyrir 483 þús. kr. Er það
184 smál. meira að magni og 200 þús.
kr. meira að verðmæti en síðastl. ár.
Útflulningsverðmæti saltaðra ufsaflaka
er 22 þús. kr. meira en 1938, og er út-
flutningsmagnið nú um 8 smál. meira
en þá.