Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 34

Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 34
28 Æ G I R menn eiga að taka vörur fyrir fiskinn og auk þess að kaupa umfram fyrir 20 % af því er andvirði fisksins nemur. Fyrir nokkru siðan liefir Sölusamlagið samið um sölu á 3 000—3 500 smál. af fiski til Spánar. Allt hefir verið i nokkurri óvissu um, hvort úr þessum kaupum gæti orðið, vegna yfirfærslu-örðugleika Spánverja. En samkvæmt síðustu fregnum má búast við, að þau geti telcist. Eftir að striðið liófst var miklum örð- ugleikum háð að fá skip til flutninga, en úr þvi rættist þó svo, að ekki kom verulega að sök. Frá 1. sept. hækkuðu farmgjöld jafnt og þétt, þar til 4. des., að Englendingar settu siglingabann á Þýzkaland, en við þá aðgerð eina hækk- uðu farmgjöld um 50 %. Sú farmgjalda- hæjkkun, er kom fram á þeim fiski, er seldur var fyrir stríð, var borguð af kaup- endunum og svo vitanlega stríðstrygg- ingin. Þótt sumarið væri eindæma hliðviðra- samt, var það þó eitt af óhagstæðustu sumrum fyrir fiskþurrk. Svo mátti heita, að ekki væri góður fiskþurrkur nema í júlí. Af því leiddi, að mikið varð að þurrka af fislci í húsum inni. Talsverðar skemmdir komu fram í fiski, bæði sól- suða og rauða, og það á þeim stöðum, sem ekki hefir orðið vart við skemmdir áður. Verð á meðalalýsi var 60 aura pr. kg frá ársbyrjun og fram til mánaðamóta marz—april, en þá hækkaði það i 73 aura pr. kg og hélzt í því verði það sem eftir var vertíðar. Hækkunin orsakaðist aðal- lega af lækkun krónunnar. Sumarlýsið var allt selt á 60 aura. — Bætiefnaríkt ufsalýsi frá vetrarvertíðinni var selt á 85—90 aura pr. kg. — Eftirspurn eftir lýsi var mjög lítil fyrri hluta árs, en glæddist í júní. Eftir að striðið skall á liækkaði þorskalýsi mjög í verði, en það kom útveginum ekki að notum, því að búið var að selja svo að segja allt lýsi fyrir þann tíma, og framleiðsla á þorska- ]ýsi seinasta fjórðung ársins er ekki telj- andi. Alls var flutt út af saltfiski i ýmiskonar ástandi og þorsk- og ufsalýsi fyrir 22 826 þús. kr., og er það tæpur þriðjungur af heildarútflutningsverðmæti þjóðarinnar árið 1939. Hvernig saltfisksalan muni verða á ár- inu 1940 er með öllu óráðið. Norðmenn eiga nú meiri saltfiskbirgðir en nokkru sinni áður, eða 41 þús. smál. Sumt af þessum fiski liggur undir skemmdum. Norska stjórnin hefir áveðið að hafa um- ráðarétt yfir fiskinum, með það fyrir augum að reyna að koma honum út. Englendingar munu engan saltfisk fram- leiða á árinu og Frakkar sennilega ekki heldur. En það sem mestu máli skiptir, er, hvort Spánverjar geta á ný byrjað að kaupa fisk i jafnríkum mæli og áður. Úr þvi verður tíminn að skera, eins og flestu öðru. Togaraveiðar. Togararnir byrjuðu lítið eitt fyrr veiðar að þessu sinni en siðastl. ár. Fyrsti togarinn hóf saltfiskveiðar 1. febr. og kom inn að 11 dögum liðnum með 144 föt lifrar. Fyrir miðjan febr. höfðu 4 togarar Ijyrj að saltfiskveiðar og seinna í mánuðinum bættust 3 við í hópinn. Annars hófu togararnir almennt ekki veiðar fyrr en seinast i marz og þann 6. apríl voru allir komnir á stað, sem þorskfiskveiðar stunduðu. Vertíðarafli togaranna var mjög rýr, og mátti svo heita, að ördeyða væri hvar sem leitað var. Lá nærri að togararnir hættu veiðum um það leyti, sem ver- tíðin liefir jafnan staðið sem hæst und-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.