Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 45

Ægir - 01.01.1940, Blaðsíða 45
Æ G I R 39 mjög mikil vinna i undirbúning að á- framhaldi verksins. Kostnaður alls um 111 þús. kr. Grímsey. Unnið var að lengingu báta- brj7ggjunnar í Sandvik. Var hún lengd um 15 m, 6 m breið og nær nú fram á 1.3 m dýpi um stærstu fjöru. Kostnaður við lenginguna varð um 15 þús. kr. Kópcisker. Fram í Kópaskerið var lagður 35 m langur og 6 m breiður garður undir veg fram i skerið. Er þetta gert í sambandi við fvrirhugaða bryggju. Kostnaður um 6 700 kr. Þórshöfn. Lokið var við þau hafnar- mannvirki, sem þar voru i smíðum og bjnjað var á sumarið 1937, en það er öldubrjótur og bryggja. Kostnaður við allt verkið varð 102 þús. kr. Vestmannaeyjar. Þar var unnið að dýpkun hafnarinnar með dýpkunarskip- inu „Vestmannaey". Þorlákshöfn. Bátabryggjan í Norður- vör var breikkuð um 4 m á 40 m löngu svæði, en í Suðurvör var steyptur um 20 m langur skjólveggur sunnan við bryggjuna, sem þar var gerð 1938. Kostn- aður við þessi mannvirki varð 7 841 kr. Grindamk. í Járngerðarstaðahverfi i Grindavík liafa verið gerðar allmiklar lendingabætur í sumar. Steypt var ný bryggja innanvert meðfram öldubrjótn- um, og er hún 41 m á lengd og 6 m á breidd. Bryggj a þessi er einkum ætluð til löndunar afla, þegar lágt er í sjó. Frá bryggjunni var steypt akbraut upp fjör- una 83 m löng. Þá var og unnið að því að gera bátgenga leið inn Hópið i Grinda- vík. Kostnaður alls um 20 þús. kr. Gerðar í Garði. Öldubrjófurinn þar var framlengdur um 26 m og er nú sam- tals orðinn 145 m. Kostnaðurinn við lenginguna í ár varð 13 500 kr. Reykjavík. Þar voru gerðar margvís- legar umbætur á höfninni. Lokið var við Ægisgarðinn og byggð skipabryggja við hann. Þá var fyllt upp í kimann fram af Verkamannaskýlinu og við Steinbryggjuna. Vitabyggingar. Knararósvitinn var fullgerðar á ár- inu og tekinn til starfa. Heildarkostn- aður hans varð 69 488 kr. fírimnesvitinn við Seyðisfjörð var endurbyggður 1938. Árið 1939 var ljós- ker gamla vitans fært yfir á hina nýju ibyggingu og vitinn tekinn til afnota. Kostnaður við endurbygginguna varð alls 5 839 kr. Hafnarnesvitinn við Fáskrúðsfjörð var einnig endurbyggður árið 1938, þ. e. vita- húsið var steypt upp og gengið frá þvi að öllu leyti. Gamla Ijóskerið frá Hvann- evjarvitanum var síðan í sumar sett upp á hið nýja vitahús og ný ljóstæki einnig tekin þar til afnota. Þessi viti og Brimnesvitinn voru áður olíuljósvitar, en nú hafa verið tekin upp gasljóstæki í þá báða. Kostnaður við endurbvggingu Hafnarnesvitans varð alls 6 588 kr. Miðfjarðarskersvitinn var byggður að fullu i ár. Hann stendur á innanverðu Miðfjarðarskeri og á að lýsa innsigling- una til Borgarness frá mynni fjarðarins og inn fvrir Borgareyjar. Byggingar- kostnaður vitans varð samtals 33 234 kr. Þridrangavitinn við Vestmannaeyjar var einnig byggður að nokkru leyti 1939. Lokið var við bvggingu vitahússins og tæki keypt, nema ljósakrónan, sem er væntanleg nú á hverri stundu. Þegar bún er komin verða ljósatækin sett upp og tekin til afnota. Landhelgisgæzlan. Varðskipið „Ægir“ var við gæzlu allt árið og varðbáturinn „Óðinn“. Eins og

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.