Ægir - 01.01.1952, Síða 7
Æ G I R
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS lSLANDS
45. árg.
Reykjavík — janúar—febrúar 1952
Nr. 1-2
Sveinn Björnsson forseti látinn.
Sveinn Bjöi’nsson, forseti íslands, lézt í
Landakotsspitala 25. janúar síðastl. sjö-
tugur að aldri. Útför hans fór fram 2.
febrúar og var i senn virðuleg og látlaus.
Síðan Sveinn Björnsson féll frá, hefur
mikið verið um hann ritað og ber öllum
saman um, að hann
hafi verið val-
menni, ötull og
duglegur starfs-
maður, samninga-
maður mikill, höfð-
ingi í lund og gerð,
sívakandi yfir því
að verða þjóð sinni
til nytja og sæmd-
ar. — Það væri að
bera í bakkafullan
læk að draga hér
fram helztu æviatr-
iði hins látna þjóð-
höfðingja, því verð-
ur einungis minnst
hér á tvo liði í hinni
mik 1 u atbur ðakeðj u
Sveins Björnsson-
ar.
Björn Jónsson
varð með ýmsum
hætti mikilvirkur
uppalandi þeirrar
kynslóðar, sem borið hefur þunga og hita
baráttunnar á framfaraskeiði íslenzku þjóð-
arinnar. Blað hans, ísafold, fór sem vígur
her fyrir framfaramálum landsmanna. Þar
var í fyrstu fitjað upp á þeim fjölmörgum,
þeim aflað fylgis með rökvísri málfærslu
og fimi tungunnar.
Þessara uppeldis-
áhrifa naut þjóðin
öll, revndar í mis-
ríkum mæli.
Oft horfði þung-
lega fyrir hugðar-
efnum Björns Jóns-
sonar. Þegar hann
hafði fengið stofn-
að gufuskipafélag
Faxaflóa og Vest-
fjarða, en ekkert
varð úr fram-
kvæmdum, varð
lionum að orði:
„Þegar þjóðin er
orðin að stranda-
glóp í framfaraleið-
angri mannkynsins
og er dottin úr sög-
unni — komin und-
ir græna torfu, þá
mætti setja á leiði
hennar þessi orð: