Ægir - 01.01.1952, Side 9
Æ G I R
3
Rætt um fiskispár
við ]ón Jónsson fiskifræðing.
í öndverðum febrúarmánuði flutti Jón
Jónsson fiskifræðingur fyrirlestur í Nátt-
úrufræðifélagi íslands, og fjailaði hann
einkum um fiskispár. Sökum þess, hve
langur fyrirlesturinn var og ýmis atriði
torskilin leikmönnum, þótti ekki hverfandi
að því að birla hann í Ægi. Hins vegar þótti
mér ástæða til að rabba við Jón um efni
hans og birta svör Jóns við spurningum
mínum.
.,Hvað er að segja um þorskrannsóknir
íslendinga áður en þú tókst við þeim?“
„í sem styttstu máli þetta. ■—- Fiskirann-
sóknir okkar íslendinga eru enn þá ungar
að árum, miðað við rannsóknir annarra
hjóða. Fyrstu þrjá áratugi þessarar aldar
annaðist Bjarni Sæmundsson þær sam-
bliða mikilli kennslu við Menntaskólann
1 Reykjavík. Bjarna tókst þó með ótrúlegri
el.ju og dugnaði að leysa þar af hendi
nierkilegt brautryðjendastarf, sem er full
sambærilegt við það, sem annars staðar
hefur verið unnið.
Þegar Fiskifélag íslands tók rannsókn-
lrnar á sína arma árið 1931 og fékk Árna
briðriksson fiskifræðing til þess að sinna
þeim einvörðungu, komst meiri skriður á
hær. Árni var lengi einn í þessu starfi, en
honuni tókst þó að koma fótum undir
rannsóknirnar og marka þeim ákveðna
stefnu. Hann gat vitanlega ekki unnið úr
ollUm þeim gögnum, sem honum bárust,
eu þau hafa þó haft mikla þýðingu fyrir
. » er seinna komu og betri tækifæri höfðu
111 úrvinnslu þeirra. — Árni lagði á þessum
aruin aðaláherzlu á að safna gögnum af
þorski, og eru þau því þyngst á metunum
af þvi, er deildin hefur yfir að ráða frá
fyrri árum.“
„Hvenær réðst þú til Fiskideildarinnar?“
„í ársbyrjun 1947, og tók ég þá við
þorskrannsóknunum og jafnframt öllum
gögnum deildarinnar þar að lútandi. Ég
var þá svo heppinn að fá afbragðs mann
mér til aðstoðar, en það er Ingimar Ósk-
arsson grasafræðingur. Hefur hann unnið
úr því nær öllum aldursgreiningum, en það
er vandasamt verk og krefst hinnar mestu
vanvirkni og þolinmæði.
Undanfarin 5 ár hefur verið unnið úr
mestum hluta þeirra þorskgagna, er safnað
hefur verið síðastliðin 23 ár. ÖII eldri gögn
hafa verið endurskoðuð, sumpart vegna
aukinnar tækni í aldursákvörðunum nú á
dögum og sumpart vegna nýrra viðfangs-
efna og sjónarmiða. Má nú segja, að við
höfum allglögga heildarmynd af þorsk-
stofninum íslenzka síðan 1928.“
„En hvað geturðu sagt mér um fiskispár
ykkar fiskifræðinganna?“
„Eins og þú veizt, hefur það lengi verið
óskadraumur fiskifræðinga að geta sagt
fyrir um fiskveiðar frá ári til árs og sums
staðar hefur það verið gert með góðum
árangri eins og t. d. fyrir brezku síldveið-
arnar út af norð-austurströnd Englands. —
En áður en ég vík að spánum og á hverju
við byggjum þær, verð ég að greina nokk-
uð frá almennu ástandi íslenzka þorsk-
stofnsins á undanförnum árum.
Til þess að þetta megi verða sem auð-
skildast skulum við líta á mynd I, en hún