Ægir - 01.01.1952, Page 16
10
Æ G I R
Frá sídasta
fiskiþingi.
Hið 21. fiskiþing var haldið i Reykjavík
dagana 25. nóv.—7. des. síðastl. Verður
hér vikið að ýinsum helztu málum, er þing-
ið gerði ályktanir um.
Hlutatnjggingarsjóður. Samþykkt var að
gerðar yrðu þær breytingar, að útflutnings-
gjald af síldarafurðum verði 1% í stað
%%, að lagt verði 1% innflutningsgjald
á allar vörur og því skipt jafnt á milli
þorsk- og sildveiðideildar, að framlag ríkis-
sjóðs til sjóðsins aukist jafnmikið og út-
flutningsgjaldið af síldarafurðunum.
Viðvíkjandi talstöðvnm var þetta sainþ.
m. a.: Að allar talstöðvar í fiskiskipum
séu tryggðar heildartryggingu með sem
hagstæðustum kjörum. — Að ársleiga tal-
stöðva sé meira miðuð við það öryggi, sem
þær veita en framleiðslukostnað og þess
jafnan gætt, að leigunni sé stillt svo í hóf
sem unnt er — Að þegar báta vantar séu
talstöðvar í landi starfræktar sem þörf
krefur í hverju tilfelli. — Að simaþjónust-
an við flotann verði gerð svo auðveld sem
unnt er. — Að rýmkað verði um notkun
talstöðva, ef unnt er. — Að sett verði tal-
stöð á utanverðu Snæfellsnesi til viðskipta
við fiskiskip á nálægum slóðum. Að tal-
stöðvar séu starfræktar á þessari vertíð
á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði,
Djúpavogi og Ólafsfirði. — Að jafnframt
fræðslu urn meðferð talstöðva verði einnig
veitt fræðsla um meðferð dýptarmæla og
hliðstæðra tækja.
Hafnarmál: „Fislciþingið skorar á Al-
þingi að láta fjárveitingar til hafnargerða
ganga fyrir, þar sem reynslan hefur sýnt
góðan árangur, fjölbyggt er og mann-
virkjagerð langt komin. — Þar eð um
marga slíka staði er að ræða, þar sem hafn-
armannvirki eru ekki fullgerð og liggja
jafnvel undir stórskemmdum, þá telur
fiskiþingið varhugavert að leggja það fé,
sem fyrir hendi er, til hafnarbóta í nýjar
hafnargerðir."
Fiskveiðilöggjöfin: „Fislciþingið skorar
á ríkisstjórn og Alþingi að láta halda uppi
röggsamlegri löggæzlu í þeim höfnum, sem
mest eru sóttar af erlendum fiskiskipum
og einnig að ákvæðum fiskveiðilöggjafar-
innar sé framfylgt um athafnir erlendra
veiðiskipa innan íslenzkrar landhelgi.“
Brunavarnir i fiskiskipum: „Fiskiþingiö
beinir þvi til skipaskoðunar ríkisins að hafa
sem nákvæmast eftirlit með uppsetningu
og litbúnaði oliuhitunartækja, raflagna,
Ijósavéla og annarra tækja i fiskiskipum,
sem brunahætta stafar af. — Brunar i fiski-
skipum hafa verið svo tíðir og stórfelldir
undanfarið, að nauðsyn krefur að reynt sé
að koma í veg fyrir þá með auknu eftirliti
og öryggi.“
Kgnnisferðir. Samþykkt var að fela
stjórn Fiskifélagsins að reyna að koma
næst á kynnisför íslenzkra útvegsmanna og
sjómanna til Bandaríkjanna og Ivanada til
þess að kynnast fiskveiðum og fiskiðnaði
þessara þjóða. Fiskiþingið fól stjórnum
fjórðungssambandanna að hafa forgöngu
um kynnisferðir innanlands.
Verbúðarbyggingar. „Það er kunnugt, að
verbúðarbyggingar eru mjög aðkallandi í
mörgum verstöðvum landsins, einkurn í
þeim verstöðvum, sem sóttar eru af utan-
héraðsmönnum, skorar fiskiþingið því á Al-
þingi og ríkisstjórn að veita ríflega fjárhæð
á fjárlögum sem óafturkræft framlag til
þessara framkvæmda, samkv. gildandi
ákvæðum hafnarlaga.“
Fiskirannsóknir og veiðitilraunir. Stjórn
Fiskifélagsins var falið að beita sér fyrir
því að framkvæmdar verði á næstu vertíð
tilraunir með herpinót til þorskveiða. — Að
fiskirannsóknum á hafinu AÚð strendur
landsins sé hagað þannig, að þær komi sem
fyrst að hagnýtu gagni við veiðarnar, m-
a. með því, að þeir vísindamenn, sem að
rannsóknum vinna, hafi náið samband við