Ægir - 01.01.1952, Page 20
14
Æ G I R
Finnur Jónsson látinn
Finnur Jónsson alþingismaður og fyrr-
verandi ráðherra andaðst að heimili sínu
í Reykjavík 30. des. síðastl. 57 ára gamall.
Eigi eru tök á því að rekja hér ævi- né
starfssögu Finns Jónssonar, því að svo
margháttuð er hún og umfang hennar stórt.
Undanfarna tvo áratugi lcom Finnur
Jónsson meira við sögu íslenzkra útvegs-
mála og félagsmálalöggjafar sjómanna en
flestir aðrir. Hann átli mikinn þátt í því,
að Samvinnufélag ísfirðinga var stofnað
árið 1927. Þessu stærsta bátaútgerðarfélagi
landsins og fyrsta sinnar tegundar stjórn-
aði hann i átján ár. Eftir að Finnur tók
sæti á Alþingi árið 1933 jukust afskipti
hans af útgerðarmálefnum. Hann átti sæti
í sjávarútvegsnefnd á tuttugu og fjórum
þingum og var lengst af formaður hennar.
Finnur vann ötullega að þeim umbótamál-
um sjávarútvegsins, sem lögð voru fyrir
Alþingi 1934, en þá var sem kunnugt er
samþykkt löggjöfin um Síldarútvegsnefnd,
Fiskimálanefnd, Fiskimálasjóð o. fl. Um
mikilvægi þessara löggjafa þarf ekki að
ræða, reynslan hefur fyrir löngu skorið úr
um það. Finnur var lengi í stjórn Síldar-
útvegsnefndar og formaður hennar í sjö ár.
Þá var hann i stjórn síldarverksmiðja rík-
isins í áratug og formaður hennar um
skeið. Þegar Landssamband ísl. útvegs-
manna var stofnað, var liann kosinn í stjórn
að steypireyðurin reyndist nú nokkru
minni.
Eftir tegundum skiptist veiðin þannig,
samanburðartölur frá fyrra ári eru innan
sviga: Langreyður 312 (226), búrhveli 13
(11), steypireyður 11 (28), sandreyður 2
(0) og hnúfubakur 1 (0).
Veiðin eftir mánuðum skiptist þannig:
Júní 105, júlí 121, ágúst 89 og 24 í sept-
ember.
Á bátana skiptist veiðin þannig: Hvalur
I 78 hvalir, Hvalur II 82, Hvalur III 95 og
Hvalur IV 84.
Hvallýsisframleiðslan varð alls um 2360
smál. Af þvi voru 100 smál. búrhvalslýsi.
Hvallýsi nr. I var nú selt á 135 £, en 109 £
smál. cif. árið áður. — Eftir er að selja lýsi
nr. II og búrhvalslýsið. Árið 1950 var hval-
lýsisframleiðslan alls um 2080 smál.
Hvahnjölsframleiðslan í ár var 850 smál.,
eða 350 smál. meira en árið áður. Verðið á
mjölinu var £45—5—0. Framleiddar voru
50 smál. af hvalkjöti til innanlandsneyzlu.
Af rengi fóru 110 smál. á markað innan-
lands og var það 25 smál. meira en árið
áður. Skíðin voru öll seld ólireinsuð til
Frakklands, en þau námu 70 smál. að
magni. — Heildarútflutningsverðmæti
hvalafurða 1951 mun nema 14—15 milljón-
um króna.
Á vegum hvalfélagsins unnu 135 menn
siðastl. sumar, þar af 54 á sjó. Greidd vinnu-
laun félagsins námu 3.8 milljónum króna.
Upplýsingar þessar eru frá Lofti Bjarna-
syni framkvæmdastjóra félagsins.