Ægir - 15.06.1970, Blaðsíða 7
ÆGIR
197
Guðni Þorsteinsson, fiskifræðingur:
t------------------------------
Haf- og fiskirannsóknir
s______________________________^
Rækjuleit r.s. Hafþórs fyrir Norðurlandi
í desember 1969 og febrúar 1970
Inngangur:
Til skamms tíma hafa rækjuveiðar okk-
ar einskorðazt við Arnarfjörð, fsafjarðar-
djúp og nokkra staði í Húnaflóa. Veiðar á
Breiðafirði og Reyðarfirði eru enn á
bernskuskeiði og annars staðar hefur veiði
ekki verið stunduð að marki. Rækja hefur
bó slæðst upp í ýmis veiðarfæri svo til alls
staðar umhverfis landið og oft tilkynna
sjómenn, að rækja komi í miklu magni upp
Ur veiddum fiski. Einkum bar mikið á
þessu við grálúðuveiðar djúpt úti af Norð-
ur- og Austurlandi í fyrrasumar. Vegna
þessara staðreynda ákvað Hafrannsókna-
stofnunin að hefja rækjuleit með nýju
sniði þ. e. á stærra skipi en áður og með
veiðarfæri hentugu til úthafsveiða. Álit-
legast þótti að leita fyrst á norðurmiðum.
2. Veiðarfæri:
Við leitina var notuð svonefnd tveggja-
poka varpa, teiknuð af höfundi þessarrar
W6
126
y>o
3o
160
niynd. Tveggja poka varpan, sem notuð var í tiWaununum. Efni er snúið polyetlvylen. 32 og AO
netið er úr garni 400 den X 36, 80 mm netið úr 400 den X 39 og 400 den X 42 (poki). Fótreipi er
stálvír vafinn manila tógi.