Ægir - 15.06.1970, Blaðsíða 8
198
ÆGIR
millinel (sia)
höfudlína
greinar eftir franskri fyrirmynd. Á 1.
mynd er sýnd vinnuteikning af vörpunni.
Á 2. mynd er sýndur langskurður af vörp-
unni og má þar átta sig á því, hvernig hún
vinnur. Þar sem rækjan er haldin þeirri
áráttu að hoppa upp, er hún verður fyrir
truflun, er hugmyndin sú, að hún fari í
gegnum netabyrði það, er kallað er „sía“
og lendi því í hinum smáriðna efri poka.
Fiski, humri og öðrum sjávardýrum er
svo ætlað að lenda í hinum stórriðna neðri
poka. Markmið þessa kynlega útbúnaðar
er annars vegar að fá ómengaðan rækju-
afla í efri pokann og losna þannig við
tímafreka og oft vart framkvæmanlega
flokkun og hins vegar að koma í veg fyrir
dráp á ungfiski, að því tilskildu, að hann
lendi í neðri poka og sleppi þar út um
stærri möskvana.
3. Fyrsta leit, desember 1969:
1 fiskirannsóknaleiðangri r.s. Hafþórs
(HK 69), sem stóð yfir frá 9.nóv.til20.des-
1969, voru dagana 2.—9. des. helgaðir
rækjuleit fyrir Norðurlandi. Skömmu áður
höfðu 2 bátar, þeir mb. Týr frá Sauðár-
króki og mb. Arnar frá Dalvík verið
styrktir til rækjuleitar. Bátar þessir höfðu,
þegar Hafþór hóf sína leit, kannað lík-
legustu svæðin á grunnslóð án teljandi
árangurs. Því var sýnt, að árangurs væri
helzt að vænta á dýpra vatni. Vegna hins
nauma tíma, sem í leitina var ætlaður, var
ekki unnt að leita ákveðin svæði gaum-
gæfilega, heldur var borið niður á þeim
stöðum, sem líklegastir þóttu. Þar að lút-
andi var fyrst og fremst stuðzt við upp-
lýsingar, sem norðlenzkir sjómenn veittu.
Alls var reynt á þeim 10 stöðvum (HK 69,
19—28), sem sýndar eru á korti á 3. mynd.
11 töflu er að finna nánari upplýsingar um
aflabrögð á hverjum stað.