Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1973, Page 5

Ægir - 15.12.1973, Page 5
EFNISYFIRLIT: RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 6 6. ÁRG. 22. TBL. 15. DES. 1973 Úr heimildahandraða seytjándu og átjándu aldar. Þá eru komnir þrír í hlut Lúðvík Kristjánsson: Þá eru komnir þrír í hlut 433 • Jón Jónsson og Sigfús Schopka: Vertíðarrannsóknir 1973 441 • Ályktanir Fiskiþings: Mengun 444 Sjómannastofur 444 • Útgerð og aflabrögð 445 • Minningarorð: Marteinn Þorsteinsson 449 • Þorsteinn Gíslason: Um fræðslu- og tæknimál 450 • Fiskaflinn í maí 1973 og 1972 454 • Rekstraryfirlit báta- flotans eftir bátastærð- um og veiðiaðferðum 1971 456 • Rekstraryfirlit báta- flotans eftir bátastærð- um og veiðiaðferðum 1972 457 ÚTGEFANDI: FISKIFÉLAG ISLANDS HÖFN. INGÓLFSSTRÆTI SlMI 10500 RITSTJÚRN: MÁR ELlSSON (ábm.) JÓNASBLÖNDAL AUGLÝSINGAR: GUÐMUNDUR INGIMARSSON UMBROT: GlSLI ÓLAFSSON PRENTUN: ÍSAFOLD ÁSKRIFTARVERÐ 600. KR ÁRGANGURINN' KEMUR ÚT HÁLFSMÁNAÐARLEGA Lúðvík Kristjánsson, sem um árabil var ritstjóri Ægis, birti í Sögu, tímariti Sögufélagsins, 1971, grein, sem hann nefnir „Úr heimildahandraða seytjándu og átjándu aldar. Þá eru komnir þrír í hlut.“ Lúðvík hefur góð- fúslega leyft Ægi að birta þessa fróðlegu grein. Heimildir íslenzkra fornrita um fiskveiðar landsmanna eru ekki ýkja miklar, en þegar þær eru í eitt saman komnar, má þó fá allsæmilega hugmynd um, hvernig þeim háttaði. — í 12. kafla Grettis sögu er þessi frásögn: „Þann tíma kom hallæri svo mikið á ís- landi, að ekki hefur jafnmikið komið; þá tók af nálega allan sjávarafla og reka; stóð svo yfir mörg ár“. — Almennt er ætlað, að sagan eigi við hall- æri það, sem menn töldu hafa orðið laust fyrir 980 og getið er um í fleiri fornritum. Litlu mun skipta fyrir efni það, sem stefnt er að rann- sókn á í þessum þætti, hvort frásögn Grettis sögu á hér við atburði frá ofanverðri 10. öld eða ritunartíma sögunnar. — Á þessum öldum, sem og síðar, skipti sjávarfengur miklu máli fyrir afkomu landsmanna. Ef hann brást, ekki sízt til lang- frama, hlaut af því að leiða hallæri og mannfelli. Athyglisverðust við frásögn Grettis sögu er sú fullyrðing, að sjávarafla hafi nálega tekið af í mörg ár. Það var talið geta gerzt. En þá vaknar sú spurn, hvort kunnugt sé um einhver önnur dæmi úr sögu þjóðarinnar varðandi afla- brest, er hafi staðið yfir í mörg ár. Frásögn Grettis sögu og skyldra heimilda um hallærið er takmörkuð og erfitt að kveða á um, hvaða dæmi megi meta hliðstæð því. Helzt kem- ur til greina að athuga tíma- bilið 1685—1704, því að um það höfum við miklar heim-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.