Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1973, Blaðsíða 7

Ægir - 15.12.1973, Blaðsíða 7
verstöðvum vegna hafíss, enda mun hann, á því tímabili sem hér er um fjallað, ekki hafa rekið jafnlangt suður né legið við land eins lengi og í þetta sinn, eftir því sem ráðið verður af heimildum. Þá var hafís á fiskislóðum Sunn- lendinga hávertíðina.r» Eigi að síður urðu mikl- ir hlutir syðra þetta ár, eða mestir um 1400.° Vestra aflaðist einnig mjög vel, en þar mun einungis átt við verstöðvarnar á Snæfellsnesi og Breiðafirði. Svipaða sögu af aflafeng á þessum slóðum er ekki að segja fyrr en 11 árum síðar. Með vertíðinni 1686 byrjar aflabresturinn í Vestmannaeyjum og í verstöðvunum fyrir austan Þjórsá, en þar var þá enn mjög mikil útgerð, miklu meiri en prentaðar heimildir greina frá, sérstaklega í Reynishöfn og við Dyrhólaey. Við upphaf aflaleysistímabilsins þarna eystra segir svo í Vallaannál, en höfund- ur hans var þá í Skálholtsskóla: „Tók þar nú mjög af fiskigang, og varð lítið um hluti lengi síðan.“7 Þessi annálsfrásögn staðfestist af öðrum heimildum. Þegar árið 1690 hefur aflaleysið leikið Vestmannaeyinga svo grátt, að bændur, sem í raun voru allir landsetar konungs, kvarta sáran yfir miklum skuldum, er þeir séu komn- ir í við kaupmenn, sem voru jafnframt leigu- takar eyjanna. Armóður eyjabænda varð til þess, að konungur sá aumur á þeim, og með bréfi til amtmanns 16. maí 1691 gaf hann þeim upp landskuldir í 5 ár og aðrar skattgreiðslur.s Snemma á 17. öld vottar fyrir þorpsmynd- unum í þrem sýslum á íslandi, og er líklegt, að þessi þurrabúðar- eða húsmannahverfi séu þá engan veginn nýlega til orðin. Þurrabúða- og hjáleiguhverfið á Siglunesi við Siglufjörð virðist úr sögunni fyrir þann tíma, sem hér er rætt um.9 Aftur á móti eru húsmannahverfið í Vestmannaeyjum og plássin á Snæfellsnesi enn býsna fjölmenn á ofanverðri 17. öld. En aflaleysið í Vestmannaeyjum hefur ekki síður bitnað á húsmönnum þar en bændum, því að á árunum næstu fyrir og eftir 1690 leggjast þar í eyði a. m. k. rösklega tveir tugir hús- mannahúsa.10 Aflaleysið í verstöðvunum fyrir austan Þjórsá og í Vestmannaeyjum mun hafa orðið mest árin 1690 og 1691. Seinna árið var forkunnar góður vetur, en eigi að síður mátti heita aflalaust á fiskileitum sjómanna úr ver- stöðvum á fyrrgreindu svæði.11 Um aflaleysið eystra árið 1690 er þess t. d. getið, að klaust- urhaldarinn í Þykkvabæ, sem þá gerði út úr Mýrdal, hafi aðeins fengið 24 fiska í 16 hluti. Og annar maður, sem þar átti 8 hluti, fékk í þá alla 10 fiska.12 í Árnasafni er varðveitt skilríki, ritað í Skaftafellssýslu árið 1705, sem veitir mjög góða bendingu um, hvaða áhrif aflaleysið hafði á útgerð Skaftfellinga. Um svipað leyti og aflaleysistímabilið byrjar, eru gerð út úr Mýr- dalnum 28 skip, allt teinæringar, en í sama mund og aflabrestinum lýkur, eða 1705, eru skipin í Mýrdalnum einungis 13 teinæringar.13 Margar heimildir vitna um mikla útgerð í Rangárvallasýslu á 17. öld.14 Sem dæmi um það má geta þess, að 12. marz 1696 laskast og brotna í fárviðri undir Eyjafjöllum 12 skip, öll stór,15 sennilega allt teinæringar og áttær- ingar. Afkoma fólks í Rangárvalla- og Skafta- fellssýslum var á 17. öld miklu meira undir aflafeng úr sjó komin en menn hafa til þessa almennt gert sér grein fyrir. Um þetta leyti voru stærstu verstöðvarnar milli Reykjaness og Þjórsár í Þorlákshöfn og Grindavík, og þar gætti aflabrestsins ekki síð- ur en austar. Hér á landi var þá biskupsstóll- inn í Skálholti ásamt konungi stærsti útgerð- araðilinn. Útgerðarstöðvar Skálholtsstóls voru þrjár, þegar hér var komið sögu, Þorlákshöfn, Grindavík og Akranes, en auk þess átti stóll- inn nokkurn þátt í útgerð á ýmsum stöðum öðrum. Fjölmargar heimildir, en þó einkum bréfabækur biskupanna, vitna um, að óger- legt var að halda skóla á staðnum né heldur standa undir kostnaði vegna biskupsembættis- ins án þess að eiga mikla aðild að útgerð. Afla- brestur langær, að ekki sé sagt aflaleysi, olli því svo miklum vandræðum á biskupsstólnum í Skálholti, og sama gegndi á Hólum, eins og síðar verður vikið að, að allt fór meira og minna úr skorðum, svo að nálega leiddi til upplausnar. Þessi var raunin, þrátt fyrir það, að Skálholtsstóll var þá stórveldi í landinu og það miklu meira, virðist mér, en rannsóknir til þessa hafa leitt nægilega í ljós. Þegar hér var komið, höfðu skipsáróðurs- kvaðir tíðkazt í landinu um þrjár aldir. Þessi kvöð var stundum einungis nefnd róðrarkvöð, en langoftast mannslán, einkum eftir aldamót- in 1700. Kvöð þessi var í því fólgin, að leigu- liði á jörð eða þurrabúðarmaður var skuld- bundinn að róa sjálfur eða einhver á hans veg- um í skiprúmi, sem landsdrottinn skipaði í. Æ GI R — 435

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.