Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1973, Blaðsíða 24

Ægir - 15.12.1973, Blaðsíða 24
Svo er bent á, að Fiskifélagið komi af stað námskeiðum næsta sumar fyrir kennara í sjó- vinnu. Það er þegar farið að skipuleggja þau af Fiskifélaginu og ég vona að þau eigi eftir að komast á sem flestum stöðum í gang næsta haust. Eftir að hafa starfað á þriðja áratug við kennslu í barna- unglinga- og stýri- mannasskóla, þá hlaut ég þá viðurkenningu í fyrra sem mér hefur þótt hvað vænst um. Ég hitti einn af mínum gömlu nemendum, traustan skipstjóra úr fiskimannastétt, sem kom til mín, tók í höndina á mér á þann hátt sem sannur maður gerir, með sinni bólgnu sjómannshendi, þakkaði mér, að hann hefði orðið sjómaður en ekki mublusmiður. Hvað segirðu drengur, spurði ég. Jú, þú kenndir okkur kubbasmíði í 1. bekk unglingadeildar- innar, en hættir því og tókst upp sjóvinnu- og siglingafræði í 2. bekk. í 4. liðnum er beðið um, að stjórn Fiskifé- lagsins beiti sér fyrir, að yfirvöld fræðslumála sjái til þess að Kennaraháskólinn undirbúi kennaraefni sín til að veita fræðslu í helstu þáttum sjávarútvegs. Eftir nám mitt á sínum tíma í Kennaraskólanum, þá tel ég að ef nem- endur þar hefðu átt kosta völ hvað þeir vildu læra til að veita fræðslu í handavinnu og öðru slíku, að það hefðu verið býsna margir, sem hefðu tekið þátt í að undirbúa sig sem fræðara í þáttum sjávarútvegs og sjómennsku og ég geri ráð fyrir, svo mjög sem Kennaraskólinn var og Kennaraháskólinn nú eru sóttir af fólki utan af landsbyggðinni og frá sjávarþorpun- um, að þarna myndu örugglega vera margir, sem vildu taka þátt í sliku. í sambandi við starfsfræðsludagana, sem teknir eru fyrir í 5. grein, þá hefur þeim ekki verið haldið uppi um árabil. Ég hef rætt þetta við stjórnendur fræðslumála, því miður virðist nafn þess manns, sem á miklar þakkir skilið í þessu máli, eins og bannorð á þeim bæki- stöðvum. Þessir starfsfræðsludagar voru flutt- ir út um land og þeir áttu stóran þátt í því að hvetja marga unglinga til að koma til sjávar- starfa og minnist ég þó nokkurra nemenda frá síðasta áratug í Stýrimannaskóla, sem að fengu sína fyrstu fræðslu um sjómennsku ein- mitt hjá okkur á starfsfræðsludaginn uppi í skóla. Þá er beðið um í 6. grein að haldið verði áfram samskonar endurhæfingarnámskeiðum fyrir skipstjórnar-og stýrimenn og haldin voru í Stýrimanna- og Vélskólanum s. 1. vor. Vél- skólinn og Stýrimannaskólinn auglýstu og héldu s. 1. vor hálfsmánaðar endurhæfingar- námskeið. Ég held að eftir þá reynslu, sem víð fengum á þessum námskeiðum, eigi þau fullan rétt á sér. Það er svo margt nýtt og svo margt sem menn þyrftu að endurnýja og rifja upp, þessvegna eiga þau fulkominn rétt á sér. Það er beðið um að handbókaútgáfa Fiski- félagsins sé haldið áfram. Hún er að verða til fyrirmyndar og er það mjög að þakka, ekki eingöngu stjórn félagsins, heldur má segja aðalritstjóra hennar, sem er Ásgeir Jakobs- son. Hann á þakkir skildar fyrir, hvaða bæk- ur hafa komið út á síðustu árum. Við öngþveiti því, sem nú ríkir á fiskiskipa- flotanum í sambandi við undanþágurnar, þá hygg ég, að það raunhæfasta, sem hægt væri að gera í dag til þess að margir miklir hæfi- leika- og úravls skipstjórnarmenn, sem eru með undanþágu og jafnvel eru að flosna úr starfi vegna réttindaleysis og er verið að meina þeim starfið, af eðlilegum ástæðum hins aðil- ans væri að halda námskeið, sem veiti þeim réttindi. Þessir menn myndu margir koma og ná sér í réttindi sérstaklega ef þetta væri flutt út um landið, á 1—2 staði aðra en Reykjavík. Það eru margir af okkar topp-, ef ég má nota það orð, toppskipstjórum í dag sem hlutu sína menntun nú fyrir nokkrum árum í öld- ungadeildinni, sem áreiðanlega hefði hætt sum- ir hverjir, ef þeir hefðu ekki náð sér í þessi réttindi. Einnig tel ég, að það gæti verið mjög til athugunar í sambandi við vélgæzlu, hvort ekki sé hægt að sérþjálfa vélstjóraefni, og þá á ég við að æfa þá aðeins í vélgæslu og kenna þeim þá ekki önnur fög á meðan, fyrir hinar ýmsu vélategundir og á 2—4 vikum mætti ná þar miklum árangri í sérþjálfun. Tæknimálin eru tekin hér fyrir. Ég vona að menn geti verið sammála nefndinni um okkar tillögur í sambandi við Tæknideildina og það sem við förum fram á, að hún beiti sér fyrir hér. Við biðjum um, að hún aðstoði við út- gáfu á 2. hefti leiðbeiningabókar, sem Stýri- mannaskólinn hóf útgáfu á. Það að 2. hefti hefur ekki komið út stafar aðallega af því, að erfiðleikar hafa verið að fá tæknimenn til að þýða leiðbeiningarkafla og handbókarhluta frá hinum ýmsu tækjum, sem eru í notkun. Víst er að fátt á eins mikinn rétt á sér um borð i skipin eins og þessar bækur. Ég nefndi dæmi 452 — Æ G IR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.