Ægir - 15.12.1974, Page 10
hafi „náðst lifandi við Miðnes". Séra Ari á
Mælifelli er einn um að upplýsa náið, hvaðan
obbinn var af mönnunum, sem fórust með
Stafnesskipunum. „Var það hið valdasta ver-
fólk af Norðurlandi, 60 menn að tölu“. Einnig
greinir Ari frá því, að 2 formannanna hafi
verið að norðan. Bergþór Magnússon frá Ytri-
Ey á Skaga og Rafn Helgason frá Mói í
Fljótum. Að sögn Ara voru öll Stafnesskipin,
sem fórust, kóngsskip, nema eitt, en formaður
á því var Ólafur Þorsteinsson lestamaður frá
biskupssetrinu á Hólum, og með honum fór-
ust 5 aðrir Hólamenn, að því er Sjávarborgar-
annáll hermir.10 Af tveim skipunum rak að-
eins upp einn mann, og barst lík hans vestur
á Mýrar og fannst þar viku eftir slysið. Hafði
maður þessi bundið sig við tré. Af hinum
skipunum rak upp 47 lík nóttina eftir slysið,
sum í Garði og sum á Miðnesi. Allar eru þess-
ar upplýsingar í Mælifellsannál, en þar segir
ennfremur: „Voru þeir allir jarðaðir í Út-
skálakirkjugarði á einum degi, og voru gerðar
að þeim 3 grafir, og voru í eina lagðir 42,
hver við annars síðu, en formennirnir í hinar
2. Að þeim voru kistur gerðar og hjúpfærðir."
I Fitjaannál er greindur sami líkafjöldi og í
Mælifellsannál, en í Vallaannál eru þau sögð
41 og þau hafi öll verið greftruð í almenningi
að kórbaki, daginn eftir að þau rak, þ. e. 11.
marz. í Eyrarannál segir, að grafnir hafi verið
50 manns á 2 dögum.11
Vafalítið er frásögn Mælifellsannáls réttust,
að því er varðar fjölda líkanna og greftrun-
ina. Frásögn Eyrarannáls kynni einnig að vera
rétt, því fleiri skip af Suðurnesjum fórust á
góuþrælinn, og kann eitthvað af líkum þeirra
manna að hafa rekið og þau verið greftruð
annan dag en fyrr er greint.
Kjósarannáll og Fitjaannáll herma báðir, að
þennan sama dag hafi týnzt 3 skip úr Garði.
Ugglaust má því telja, að 8. marz 1685 hafi
farizt 10 skip af Suðurnesjum. En hvað marg-
ir menn drukknuðu af þeim? Kjósarannáll tel-
ur, að þeir hafi verið 81 og þar af hafi 13 verið
á Garðskipunum. Eftir því hefðu 68 menn átt
að hafa farizt með Stafnesskipunum. Fitja-
annáll segir þá hafa verið um 70, en Valla-
annál hins vegar 58. Sú tala er tvímælalaust
röng, annaðhvort vegna ranghermis eða mis-
ritunar, 68 orðið að 58. Á Stafnesskipunum
hafa vafalítið verið 70 menn og af þeim bjarg-
azt 2. Þannig farast 68 af Stafnesi og 13 úr
Garði eða alls 81, eins og Kjósarannáll grein-
ir, en ekki 99, svo sem talið er í Sjávarborgar-
annál.
En nú telja Hestsannáll og Fitjaannáll, að
136 menn hafi farizt þennan dag12, og mun
það mjög nærri því rétta, því að enn eru ótald-
ir 4 teinæringar, sem þá fórust frá Vestmanna-
eyjum,13 og á þeim 53 menn,14 enn fremur
tveggja manna far frá Vatnsnesi í Húnavatns-
sýslu með tveim mönnum.15 Af þessum 5 skip-
um hafa því farizt 55 menn, en að viðbættum
81, er drukknuðu frá Stafnesi og Garði, hafa
því alls farizt í sjó þennan dag 136 menn, eins
og Fitjaannáll og Hestsannáll telja.
Sex annálum16 ber saman um það, að fyrr
þennan vetur hafi farizt áttæringur eða tein-
æringur frá Eyrarbakka með 11 mönnum.
Kjósarannáll einn tilgreinir daginn, sem var
7. febrúar. Þá telur sami annáll, að 20. marz
hafi farizt smábátur úr Hafnarfirði með tveim
mönnum. Einungis einn annáll annar getur um
þennan bátstapa.17 Hafa þá verið taldir allir
skiptapar í Sunnlendingafjórðungi þetta ár,
en þeir urðu alls 16, og af skipum þessum
hafa drukknað 149 menn.
Eins og vænta má, eru í Eyrarannál gleggst-
ar heimildir um bátatjónið í Vestfirðingafjórð-
ungi. Þar er talið, að teinæringsskip hafi far-
izt undir Jökli, bátur frá Sandi með 4 mönn-
um, bátur úr Flatey með þrem mönnum og bát-
ur úr Súgandafirði með 6 mönnum. Einungis
Fitjaannáll kann jafnframt að greina frá báta-
tjóninu undir Jökli. Ennfremur herma þrír
annálar18 frá því, að af þriðja bátnum undir
Jökli hafi drukknað einn maður. í Vestfirð-
ingafjórðungi hafa því týnzt 4 skip og drukkn-
að 25 menn, að því er ætlað verður. Tveir ann-
álar19 telja, að af Tjörnesi hafi farizt sexær-
ingur og sennilega sjö menn með honum.
Eftir því sem nú hefur verið reynt að rekja,
virðast því hafa farizt 22 bátar hér við land
árið 1685 og í sjó drukknað 181 maður. Ekki
koma þessar tölur heim og saman við frásögn
Fitjaannáls, sem eins og fyrr segir telur bát-
ana 19, en í sjó hafi þá drukknað 191 íslend-
ingur. Sennilega verður seint úr því skorið,
hvort kann að vera réttara. Vert er þó að vekja
athygli á því, að bátafjöldinn, sem Fitjaann-
áll greinir, er tortryggilegur, ef tala drukkn-
aðra er þar rétt hermd. Það ber við, að í bréfa-
bókum biskupa sé vikið að almæltum tíðind-
um. Frá þessu ári er einungis til bréfabók
Þórðar Þorlákssonar Skálholtsbiskups, en þar
er slysfaranna árið 1685 að engu getið. Rétt
384 — Æ GIR