Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1980, Side 16

Ægir - 01.04.1980, Side 16
2. tafla. Nokkrar niðurstöður humarmerkinga. Stærð Stærð Merktur Endurveiddur Fj. mán. við merkingu við endurveiði Vöxtur (dags. ár) (dags. ár) i sjó (skjaldarl. mm) (skjaldarl. mm) á ári% 1 1-9-65 6-9-67 24 52 57 4.8 11-9-65 17-8-66 11 43 46 7.6 3-9-71 4-7-72 10 39 42 9.2 10-9-72 27-5-73 8 50 56 18.0 11-9-72 1-6-73 9 47 50 8.5 15-9-72 29-6-73 9 35 38 1 1.5 11-9-73 30-6-74 9 40 46 20.0 11-9-73 20-6-74 9 45 48 8.9 22-8-74 10-6-75 10 41 44 8.8 14-9-75 27-6-76 9 43 45 6.3 voru framkvæmdar merkingar á humri i allstórum mæli hérlendis. Markmiðið var einkum það að fá einhverjar upplýsingar um vaxtarhraða humars, sem lengst af hefur verið sem lokuð bók bæði hér og erlendis. Enda þótt þessar tilraunir hafi e.t.v. ekki gefið árangur sem erfiði og þeim því hætt 1975, hafðist upp úr krafsinu dálítil vitneskja um vöxt dýra, sem endurveidd voru 8-24 mánuðum eftir merkingu. Tafla 2 gefur yfirlit yfir tíu áreiðanleg- ustu endurheimturnar. Samkvæmt þeim er vöxtur- inn frá 5-20% á ári eftir einstaklingum eða að jafn- aði 10.4%, en það samsvarar um 30% ársaukningu í þyngd. Vöxturinn er því mun minni hjá þessum humrum (meðalstærð um 45mm skjaldarlengd eða 90mm halalengd) heldur en hjá smærri dýrum sem áður var fjallað um. Þó að þessar niðurstöður séu ekki yfirgripsmiklar, gefa þær nokkrar hug- myndir um vaxtarhraða meðalstórra humra. Ofangreind dæmu um kannanir á vaxtarhraða humars, þótt mjög ófullnægjandi séu miðað við öryggi kvarnalesturs ýmissa fiskistofna, hafa eftir sem áður gert tilraunir við mat á vexti og við- gangi humarstofnsins mögulegar. Hefur þannig verið fyllt upp í vissar eyður upplýsinga, sem gerðu nýjustu aðferðir við stofnstærðarútreikninga öld- ungis ónothæfar fyrir nokkrum árum. Nánari um- fjöllun um þau efni verður þó að bíða betri tíma. Úrdráttur Hér að framan hefur stuttlega verið greint frá nokkrum atriðum viðvíkjandi líffræði og lífshátturn humarsins við fsland, og hvernig sérstakir eigin' leikar þessa botndýrs tengjast hinu norræna ut- breiðslusvæði og veiðimöguleikum hverju sinni- Þá er nokkuð fjallað um tilraunir til að m&ta vaxtarhraða humars, en skortur á öruggum aðferð- um á þessu sviði hefur verið mikill þrándur í götu krabbadýrarannsókna yfirleitt, auk þess sem þa^ hefur hamlað stofnstærðarathugunum að verulegu leyti. Heimildir: 1. Anon.. 1978. Ástand nytjastofna á íslandsmiðum og aUa horfur 1978. Hafrannsóknir nr. 13. 2. Anon., 1979. Ástand nytjastofna á íslandsmiðum og afl‘* horfur 1979. Hafrannsóknir nr. 17. 3. Anon.. 1979. Report of the working group on assessments of Nephrops stocks. C.M. 1979/K:2. Shellfish Committee- ,4. Chapman. C.J., 1979. Some observations on populatioh5 of Norway lobster, Nephrops norvegicus (L.) using divmfc' television and photography. Rapp. P.-v. Réun. Cons. int' Explor, Mer. 175: 127-133. 1979. 5. Hrafnkell Eiríksson. 1970. On the Breeding Cycle an Fecundity of the Norway Lobster at South-West Icelanít- C.M. 1970/K:6. Shellfish Committee. 6. Hrafnkell Eiríksson. 1979. A study of the Icelandic Nephrop fishery with emphasis on stock assessments. Rapp. u Réun. Cons. int. Explor. Mer, 175: 270-279. 1979. 7. Figueiredo. M.J. og Thomas, H.J., 1967. Nephrops norvegú*** (Linnaeus. 1968) Leach A Review. Oceanogr. Mar. Billt- Ann. Rev., 1967, 5, 371-407. 192 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.