Ægir - 01.04.1980, Page 26
Jakob Jakobsson:
Fundur um síldveiðar með
skipstjórum og útgerðarmönnum
Nokkrar athugasemdir
I 1. tbl. Ægis 1980 er sagt frá fundi um síldveiðar
með skipstjórum og útgerðarmönnum sem haldinn
var 28. sept. 1979. Þar sem að mér er sneytt á
nokkrum stöðum í frásögninni þykir mér rétt að
koma hér með nokkrar athugasemdir í þeirri von
að leiðrétta ýmisskonar misskilning sem fundar-
menn virðast hafa verið haldnir.
Undirritaður Ijarri góðu gamni
Hörður Þórhallsson harmar í framsöguræðu
sinni að ég gat ekki verið á fundinum þar eð hann
þykist vita að margir fundarmanna ættu ýmislegt
vantalað við mig. Þetta verður Hörður að skrifa á
reikning Fiskifélagsins. Fundurinn var haldinn
meðan undirritaður sótti ársfund Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins en þeir eru ákveðnir með löngum
fyrirvara eins og Fiskifélagsmönnum er manna best
kunnugt.
Hvaðan kemur sú hvöt
I sömu ræðu segir Hörður ennfremur: „Þá leyfi ég
mér að gagnrýna þá umsögn Hafrannsóknastofnun-
ar, að þeir skipstjórar sem svöruðu bréfi Jakobs, þar
sem hann bað um úrdrátt úr dagbókum skipanna,
hafi nær eingöngu verið skipstjórar sem fengu
síldina í fáum köstum og veit ég satt að segja ekki
hvaðan þeim kemur sú hvöt að draga þá ályktun."
Ég geri ráð fyrir að hér sé Hörður að vitna til eftir-
farandi ummæla í mjög umdeildri grein minni Um
síld og síldveiðar 1 Ægi 4. tbl. 1979 bls. 192. Þar segir:
„Þar eð mörgum síldveiðiskipstjórum þótti sem
þeir væru hafðir fyrir rangri sök var gerð tilraun til
að kanna hve mikil brögð hefðu verið að því að síld
væri sleppt úr nótum. í þessu skyni var öllum þeim
er leyfi fengu til hringnótaveiða sent bréf þar sem
óskað var eftir afriti af dagbókum síldveiðiskip-
stjóra. Nærri 2/s leyfishafa (56) hundsuðu þessa
beiðni en svör bárust frá 30 skipstjórum og kann ég
þeim þakkir fyrir.
Nokkur þessara skipa fengu aflann í fáum köstum
og slepptu síld örsjaldan eða aldrei, önnur slepptu
mun fleiri köstum, en þeim sem hirt voru. I einni
veiðiferð var síld t.d. hirt einu sinni en sleppt 20
sinnum. Að meðaltali var síld sleppt álíka oft og
hún var hirt. Þar eð skýrslur bárust einkum frá þeim
skipum sem vel gekk að fiska er hæpið að þessar
niðurstöður séu marktækar.“
Hér er átt við það að hlutfallslega fleiri svör hafi
borist frá þeim skipstjórum sem vorufljótirað ljúka
Hlulfallsleg flokkun sildveiöiskipa eflir því hve margir dagar
liðu fráfyrstu til síðustu löndunar. Súlurnar eru skástrikaöar .
miðað er við þásem skiluðu skýrslum tii Hafrannsóknastofnuaar
um vertiðina 1978 en rúðustrikaðar ef miðað er við þá sem t’K
skiluðu skýrslum.
202 — ÆGIR