Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1980, Síða 32

Ægir - 01.04.1980, Síða 32
aftur í sjónum og áhrif pólsjávar í Grænlands- straumi jukust eins og varð við ísland. Á sömu árum eða upp úr 1967 dró mjög úr þorskveiðum við Vestur- Grænland og eftir 1972 hafa þær aðeins verið um 1/10 hluti af því sem áður var (4. mynd). Fréttir af auknum þorskveiðum við Grœnland á árinu 1979 breyta hlutfallslega litlu þar um (16). Eins og áður sagði (1. mynd) mun þorskurinn við Austur-Grænland yfirleitt vera í meiri eða minni tengslum við þorsk á íslandsmiðum, og a.m.k. hluti hans hefur hrygnt við ísland (25). „Stórir árgangar við Austur-Grænland munu hafaskilaðtalsverðum afla á land hér á íslandi, nú síðast vetrarvertíðarnar 1969 og 1970 þegar árgangarnir frá 1961 og 1963 leituðu hingað til hrygningar“ (5). Eins voru göngur frá Vestur-Grænlandi til íslands tíðar á uppgangs- Þús. torm Grœnlancl 4. mynd. Þorskafli við Vestur-Grœniandeflir 1962. Hrun veið- anna eflir 1968-1970 er f’reinilegt. Veiðar Grœniendinga voru aðeins um 20-30 þúsund tonn á ári, hitt veiddu aðrar þjóðir (5.14). Cod fisheries in West Greeniand waters 1962-1974 (5.14). 208 — ÆGIR tímum þorsksins (,,offjölgun“) þar vestra(5. mynd). „Sérstaklega kvað að þessu á fjórða áratugnum. en eftir það dró úr göngunum, þegar sjávarhiti hækkaði við Vestur-Grænland á fimmta áratugn- um og skilyrði til hrygningar þar bötnuðu" (1). Verður ekki rætt frekar um þessar göngur fra Vestur- eða Austur-Grænlandi til íslands, en geng- ið út frá þeim sem vísum eftir atvikum. Kynhvöt eða heimþrá? Hvað veldur þessum göngum frá Grænlandi til íslands? Tvær kenningar munu vera uppi (5) — „fisk- urinn finnur ekki skilyrði til hrygningar við Græn- land, eða þá að hann er af íslenskum uppruna og leitar aftur til fyrri heimkynna eins og laxinn.“ Hér skal ekki fullyrt, hvor kenningin sé sú rétta, en eins og oft vill verða þá eiga þær e.t.v. báðar við, saman eða á víxl á mismunandi tímum. Hugum þó betur að málinu. Alkunna er að ís- lenski þorskstofninn minnkaði ár frá ári 1955-1965, síðan fór hann aftur vaxandi um sinn fram undir 1969 (6. mynd), en minnkaði eftir það aftur frarri a síðustu ár. Sömu sögu er að segja um hrygningar- stofninn, nema fyrra lágmark hans var 1967, °S hámark aftur 1970 vegna gangna frá Grænlandi eins og fyrr sagði. Hvarf þorsksins frá Vestur-Grænlandi eftir 1968 og fyrrnefndar göngur á íslandsmið frá Grænlandi 5. mynd. Göngur þorsksfrá Vestur- Grœnlandi lii Isiands á áru” um 1924-1939. Tölurnar tákna þann hundraðshluta. sem endn' heimtist við ísland úr merkingumfrá viðkomandisvæði. Örvorn ar henda á það svœði. sem fiskurinn endurheimtist á. og A>" þeirra gefur til k vnna Jjöldann (9). Migration of codfrom West Greenland waters to lceland duáW 1924-1939 (9).

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.