Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.1980, Side 16

Ægir - 01.06.1980, Side 16
Inngeislun frá sól gæti breyst af fleiri en einni ástæðu. Útsend orka gæti verið eitthvað breyti- leg, fjarlægðin milli sólar og jarðar kynni að breytast eitthvað umfram þær reglulegu breytingar sem vitað er um, óþekkt efni í geimnum gæti dregið úr geislun, og geislanám í lofthjúpnum eða endur- varp geislunar frá lofthjúp og yfirborði gæti einnig tekið breytingum. Áhrif mannsins Auk stöðugrar leitar að hinum náttúrulegum or- sökum veðurfarsbreytinga hafa vísindamenn nú í fyrsta skipti orðið að takast á við þá áleitnu spurn- ingu, hvort maðurinn sé með athöfnum sínum farinn að hafa áhrif á veðurfar jarðar, eða hvort aðgerðir manna nú á tímum gætu síðar haft afdrifa- ríkar afleiðingar í för með sér sem ekki verður ráðið við þegar þar að kemur. Þessi nýju viðhorf má auðvitað rekja til þeirrar tæknibyltingar og iðn- væðingar sem orðið hefur á tiltölulega skömmum tíma, og hefur m.a. leitt til þess að út í lofthjúpinn berast margvísleg efnasambönd og ryk, sem raska þvíjafnvægi sem fyrirer. Hérerekkitómtilaðræða þessi vandamál að marki, en þó verður vart hjá því komist að minnast aðeins á koldíoxíð (koltví- sýring) og áhrif þess. Áhrif koldíoxíðs Flestir eru sammála um að líklegustu áhrif manna á veðurfar í framtíðinni tengist lofttegund- inni koldíoxíð (CO2). Koldíoxíð hefur nokkur áhril á hitafar í lofthjúpnum, þar eða það nemur í sig hluta af langbylgjuútgeislun frá jarðaryfirborði, sem að öðrum kosti hyrfi út í geiminn. Aftur á móti hindrar það ekki að ráði inngeislun frá sól. Áhrif koldíoxíðs eins út af fyrir sig eru því á þá lund að aukning þessarar lofttegundar myndi Jeiða til hœkkandi hita við yfirborð. Nú er vitað að magn koldíoxíðs í lofthjúpnum eykst smám saman, einkum vegna gífurlegs og si- vaxandi bruna á kolum og olíu, en einnig vegna þess að sífellt gengur nú á skóglendi jarðar sem notar mikið af koldíoxíði og bindur það. Á fyrri hluta þessarar aldar töldu ýmsir að þarna væri fundm almenn skýring á veðurfarsbreytingum, og renndi það stoðum undir kenningu þeirra, að frameftit öldinni hækkaði hiti nokkuð almennt. Síðar fór hiti aftur á móti heldur lækkandi en magn koldíox- íðs hélt áfram að aukast, og þar með stóðst su kenning varla lengur. Enginn efast þó um aukning koldíoxíðs kunni smám saman að hafa em- hver áhrif á hitafar. Þau áhrif verða þó ekki veruleg fyrr en eftir alllangan tíma, því að fjarri fer að alh Hitabreytingar i Reykjavík í tæpa eina öld , 1881 - 1979. Hiti einstakra óra og 5 á ra me&altöl. 320 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.