Ægir - 01.06.1980, Blaðsíða 24
milli þessara stórvelda veðurfarsins kaup og sala á
hreyfiorku, hita og raka.
Hafís er afsprengi hafs og lofts og verður til
við gagnkvæm áhrif, víxláhrifin. Fullkomið líkan af
lagahjúpi þeim, sem umlykur jörðina, þyrfti því
að taka hafísinn með í útreikningana. Á hinn bóginn
er það von líkansmiða að nota megi líkanið við
spár um myndun og rek hafíss á Norður-íshafi
með útjöðrum þess og við Suðurheimskaut.
Gerð líkana af þessu tagi er mikið Grettistak og
mun krefjast vinnu og hugvits nokkurra kynslóða
visindamanna áður en þau koma að gagni, en til eru
líkön, sem ætlað er minna hlutverk. Reynast þau
nógu léttvæg samt enn sem komið er, hvað snertir
árangur. Má t.d. nefna líkön til að spá fyrir um
ísrek og ísmyndun á takmörkuðu svæði næstu
dagana.
Sennilega má telja öflun mælinga af spásvæð-
unum alvarlegastan Þránd í Götu velheppnaðrar
spár og er þá til lítils að hafa í höndum sæmi-
lega gert líkan eða hugvitsamlega eftirlíkingu af
áhrifum vinda og strauma. Hins vegar verður að
tjalda því sem til er og er það gert, en ekki verða
þessi vandkvæði rædd hér nánar.
Þess skal að lokum getið, að til viðbótar við
þessar eðlisfræðilegu aðferðir eru tölfræðilegar haf-
ísspár einnig gerðar. Þær styðjast við mælingar
ýmissa veðurþátta um lengri eða skemmri tíma.
Reynt er að ákveða með hvaða líkum vænta má til-
tekins atburðar og er spá Páls Bergþórssonar um
hafís við strendur íslands þessarar gerðar.
Tölfræðilegar eða statistískar spár styðjast sem
sagt við raunverulegar mælingar um lengri eða
skemmri tíma og þar af leiddar stærðir, sem reikn-
aðar eru út til að finna helztu einkenni mælinga-
raðanna, svo sem meðaltöl, sveiflur, fylgni, tíðni
meginbreytinga og hugsanlegan skyldleika tíma-
raðanna. Greiningaraðferð þessi heitir tímaraða-
greining (time series analysis) og er mikið notuð
í náttúruvísindum, verkfræði, hagfræði og öðrum
þeim fræðigreinum, sem hafa upp á að bjóða ofgnótt
talna að moða úr. Tölfræðilegar rannsóknir ogspár
eru talsvert stundaðar í veðurfræðinni og er það
að vonum, þvi að nóg er af tölunum, þ.e.a.s.
mælingum á margs konar veðurþáttum.
Nú hefur verið getið tvenns konar meginað-
ferða við rannsóknir á flóknum kerfum á borð við
andrúmsloftið, hafið og víxlverkanir þeirra. Annars
vegar er hin eðlisfræðilega leið, sem styðst einkum
við eðlisfræðileg lögmál og líkingar, en hins vegar
eru tölfræðilegar aðferðir þar, sem leitast er við að
vinsa úr viðeigandi mælingum og talnarunum. Að-
ferðir þessar eru mjög ólíkar og eru brögð að
því, að vísindamenn skipi sér í andstæðar fylkingar.
sem sýna takmarkaðan áhuga og skilning á hvors
annars þankagangi. Báðar aðferðir hafa þó hvor 1
sínu lagi sitthvað sér til ágætis, sem hin getur
ekki látið í té, og skifta á gagnlegan hátt með
sér verkum við könnun á hátterni náttúrunnar.
Veðurfarsrannsóknir og atvinnuvegirnir
Allvíða erlendis fer nú fram umræða um veður-
farsbreytingar og áhrif þeirra á atvinnuvegi, þjóð-
félagið í heild og þar af leiðandi samskifti þjóð-
anna. Veðurfræðingar telja tímabært, að stjórn-
málamenn og aðrir, sem ákvarðanir taka, færi sér
betur í nyt þá þekkingu, sem þegar er búið að
afla. Á jörðinni búa nú um fjögur þúsund miH'
jón manns og sex þúsund milljón verða á vapp1
um aldamótin og þurfa í sig og á. Jörðin er að
vísu víðáttumeiri en margur hyggur og hefur verið
reiknað út til gamans, að mannkynið allt kæmis1
fyrir á Reykjanesi stæðu menn þar uppréttir jafn-
þröngt og þykir sæma að búa að hænsnum í nu-
tímahænsnabúum. En maðurinn er heimtufrekan
en svo og hafa nú, eins og áður sagði, veðurfars-
fræðingar hvatt forráðamenn þjóðanna til forsjálm
í framtíðaráætlunum sínum, ef þeir þá hafa slíkar
á annað borð.
Að dómi veðurfarsfræðinganna dugir ekki lengur
að hafa í huga, að allra veðra geti verið von óa
degi til dags, heldur líka frá ári til árs - og jafri-
vel frá áratug til áratugs, og framkvæmdir skylá1
miða við það. Það ætti að notfæra sér þekkingur>a
á náttúrunni og örva þekkingarleitina, m.ö-O-
vísindin, og yrði þá þeim mun minna um afdrifarík
mistök og kostnaðarsama björgunarstarfsemi.
Náttúrufræðingar stinga upp á því, að atvinnU'
vegir landanna, svo sem landbúnaður og samgöngu'
mál, verði skipulagðir frekar en orðið er me
tilliti til veðurfarsbreytinga. Því miður hafa u111'
ræður þessar reynzt ófrjóar, því að stjórnmál3'
maðurinn og framkvæmdamaðurinn spyrja vlS'
indamanninn: „Heyrðu laxi, þú vilt, að við tökun1
mark á þér og jafnvel styrkjum grúsk þitt úr °kkal
vasa. En hvar er spáin þín? Hvernig verður veðn
eftir 10 ár?“ Þá verður fátt um svörin og þau bezt. a
slíka spá geti hann ekki gert að svo stöddu, efl
gera mætti sér góðar vonir, ef hann fengi e,n
mitt styrkina frá peningavaldinu til þeirra rann
sókna, sem til þyrfti. í stuttu máli má segja, að uá11
328 — ÆGIR