Ægir - 01.06.1980, Blaðsíða 64
LÖG
nr. 4 1. febrúar 1980 um breytingu á lögum nr.
80 16. sept. 1971, með áorðnum breytingum, um
Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins.
1. gr.
2. gr. orðist svo:
Sjóðurinn skiptist i þrjár deildir: Almenna deild,
áhafnadeild og verðjöfnunardeild.
2. gr.
3. gr. orðist svo:
Hlutverk almennu deildar sjóðsins er að bæta
aflahluti skips og áhafnar, þegar almennan aflabrest
ber að höndum, eða þegar brýna nauðsyn ber til að
draga úr sókn til verndar mikilvægum nytjastofn-
um.
Réttindi í hinni almennu deild sjóðsins eiga öll
fiskiskip án tillits til stærðar, enda sé greitt af endan-
legu afurðunum úr aflanum útflutningsgjald.
3. gr.
Á eftir 20. gr. laganna komi nýr kafli svohljóð-
andi:
III. KAFLI
Verójöfnunardeild.
21. gr. — Við Aflatryggingasjóð skal starfa sér-
stök deild, verðjöfnunardeild, sem greiðir verðupp-
bætur á afla einstakra fisktegunda samkvæmt
ákvæðum þessa kafla í því skyni að draga úr sókn í
einstaka fiskstofna og beina henni til annarra, sem
fremur eru taldir þola veiðar.
22. gr. — Tekjur verðjöfnunardeildar skulu vera:
1. Tekjur af útflutningsgjaldi samkvæmt lög-
um.
2. Vextir og aðrar tekjur af eignum verðjöfn-
unardeildar.
23. gr. — Verðlagsráð sjávarútvegsins eða yfir-
nefnd þess skal fyrir upphaf hvers verðtímabils gera
tillögur um fjárhæð aflajöfnunarbóta á einstakar
fisktegundir að fengnu áliti Hafrannsóknastofnun-
ar á ástandi nytjastofna og aflahorfum. Skal íjár-
hæðin ákveðin innan þeirra marka, sem eignir og
tekjur verðjöfnunardeildar hrökkva til. Sjávarút-
vegsráðherra staðfestir ákvarðanir Verðlagsráðs
sjávarútvegsins eða yfirnefndar þess um aflajöfn-
unarbætur. Aflajöfnunarbætur skv. lögum þessum
skulu koma til skipta og aflaverðlauna eins og ann-
að fiskverð.
24. gr. — Sjávarútvegsráðuneytið setur nánarj
reglur um framkvæmd þessa kafla og starfserni
verðjöfnunardeildar. Deildin hefursjálfstæðanfjar-
hag.
4. gr.
Greinaröð og kaflaheiti laganna breytist í sam-
ræmi við ákvæði 3. gr.
5'gr' • --x
2. tl. 1. mgr. 9. gr. orðist svo: Framlag ríkissjoðs
til almennu deildar sjóðsins nemi 40% af tekjum
hennar skv. 1. tl. 1. mgr. þessarar greinar.
6. gr.
Eignir almennu deilda bátaflotans og togaraflot-
ans svo og jöfnunardeildar Aflatryggingasjóðs, sem
starfað hafa samkvæmt lögum nr. 80 16. september
1971, skulu renna til almennu deildar sjóðsins.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og taka ákvæði þeirra
til afla, sem landað er á árunum 1980 og 1981.
Gjört í Reykjavík 1. febrúar 1980.
Kristján Eldjárn.
(L.S.)__________________
Kjartan Jóhannsson.
LÖG
nr. 3 1. febrúar 1980 um tímabundið olíugjald til
fiskiskipa.
(Lagabreyting staðfest 11. apríl 1980 er tekin hér
inn í).
'• gr' . f.
Þegar fiskiskip selur afla í innlendri höfn, eða a*
hendir afla sinn til vinnslu án þess að sala fari fram-
skal fiskkaupandi eða fiskmóttakandi greiða ut-
gerðarmanni eða útgerðarfyrirtæki olíugjald, eT
nemi 2,5% miðað við fiskverð eins og það er ákveð'
af Verðlagsráði sjávarútvegsins. Hið sama gild>r'
þegar fiskiskip selur afla sinn öðru skipi til löndunar
í innlendri höfn. Olíugjald þetta kemur ekki ti
hlutaskipta eða aflaverðlauna.
2- gr- k
Þegar fiskiskip selur afla í erlendri höfn, skal au
Framhald á bls. áál
368 — ÆGIR