Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1980, Page 34

Ægir - 01.06.1980, Page 34
Guðni Þorsteinsson, fiskifræðingur: Veiðarfærasérfræðingar á fundi í Reykjavík Eins og ýmsum mun kunnugt starfar Alþjóða- hafrannsóknaráðið í ýmsum nefndum. Ein þessara nefnda nefnist „Fish Capture Committee“ eða veiðinefnd og fjallar hún einkum um veiðarfæri og hegðun fiska en reyndar einnig um fiskiskip og tæki. Fundir eru í öllum nefndunum á haustin, annað hvort ár í Kaupmannahöfn, þar sem ráðið hefur skrifstofu, en annað hvort ár- á oddatölum- í öðrum aðildarlöndum til skiptis. í flestum nefnd- unum eru síðan vinnuhópar, sem vinna að ákveðn- um verkefnum og skila síðan áliti á haustfundinum. í veiðinefndinni eru tveir vinnuhópar og fjallar annar um tæki og veiðarfæri en hinn um hegðun fiska og annarra dýra gagnvart veiðarfærum. Vinnuhópar þessir eru að því leyti sérstæðir, að menn eru hvorki kosnir né skipaðir í þá, heldur er sá háttur á hafður, að hvert aðildarland getur sent eins marga menn á vinnuhópafundi og því sýnist í það og það skiptið. Hóparnir hafa smá- stækkað með árunum. Fundir eru haldnir árlega í fyrstu heilu vikunni í maí til skiptis í aðildar- löndunum. Veiðarfærahópurinn heldur fundi á mánudag og þriðjudag en hegðunarhópurinn á miðvikudag og fimmtudag. Föstudagurinn er svo laus, ef á þarf að halda, en mikið er um það, að þátttakendur heimsæki þá fyrirtæki og stofnanir. Að mestu leyti sækja sömu mennirnir fundina í báðum vinnunefndunum. Að þessu sinni voru fundirnir haldnir 5.-8. maí í húsi Fiskifélags íslands. Auk þessara funda kom svo sérstakur hópur saman miðvikudaginn 7. maí að Skúlagötu 4 til þess að undirbúa ráðstefnu um fiskileit og fiski- leitartækni. Nefndarmenn í þeim hópi sátu svo fundi í hinum nefndunum hina dagana að meira eða minna leyti. Alls komu 36 útlendingar til þessa fundar og 6 íslendingar sátu þá einnig. Rétt þykir að drepa á hið helsta, sem fram fór á fundum veiði- nefndar en undirritaður sat ekki fund í fiskileitar- hópnum og getur því ekki sagt frá honum. í vinnuhópnum er gengið þannig til verks, að fyrst eru fluttar munnlegar skýrslur um það helsta. sem gert hefur verið í hverju landi frá síðasta fundi- Að lokinni hverri skýrslu gefst kostur á að bera fram spurningar og athugasemdir. Síðan eru flutl erindi um ýmis efni og einnig fara fram umræður um ákveðna málaflokka. Tíðum eru sýndar kvik- myndir eða sjónvarpsmyndir af sumum þeim rann- sóknum, sem fjallað er um, og er þar oft um neðan- sjávarmyndir að ræða. Eitt helsta umræðuefnið í báðum hópunum voru ný viðhorf í fiskveiðum vegna hins háa olíuverðs. Voru lögð fram nokkur erindi um olíueyðslu nokk- urra landa við mismunandi veiðiaðferðir og ohu- kostnaðurinn settur í samhengi við aflann eða aflaverðmætin á einn eða annan hátt. Ljóst er að togveiðar verða að tiltölu óhagkvæmari með vaxandi olíuverði miðað við aðrar veiðiaðferðir- Er nú unnið að því í ýmsum löndum að auka veiðar með staðbundnum veiðarfærum og haga rann- sóknum á veiðarfærum, skipum og hegðun fisk3 og annarra sjávardýra í samræmi við það. Er hér t.d- um línuveiðar að ræða gjarnan í sambandi við línuvélar. Einnig hefur áhugi á gildruveiðum farið vaxandi. Notkun lagneta fer hins vegar mjðg hægt vaxandi, enda virðast sumar þjóðir útiloka slíkar veiðar, vegna þess hve hráefnið er léleg1- Einnig fer áhugi á dragnótaveiðum vaxandi, endu þótt þar sé ekki um staðbundið veiðarfæri að ræða- enda má draga úr olíunotkun með því að beita þessari veiðiaðferð í stað togveiða einkum ef dreg>° er fyrir föstu. Spurningin er hins vegar, hvort aflmn verður nógu mikill til þess að dragnótaveiðarnat verði arðbærari en togveiðarnar. Þrjú erindi voru lögð fram um flotvörpur og 338 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.