Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1981, Blaðsíða 30

Ægir - 01.11.1981, Blaðsíða 30
væri út af fyrir sig spursmál hvort samband ætti að vera hér á milli, því peningunum hefði verið betur varið til vinnslunnar. í dag væru nýjar forsendur í fiskiðnaði. Allur skilningur væri jákvæðari og aukin samkeppni væri við Kanadamenn. Þetta væri af hinu góða. í fiskiðnaði vantar meira áhættufjármagn. Varðandi líkanasmíði væru mörg sjónarmið sem taka þyrfti tillit til, s.s. atvinnu- og byggðasjónarmið. Snúa mætti umræð- um um sjávarútvegsmál við og spyrja alltaf hið gagnstæða, t.d. í staðinn fyrir: er hagkvæmt að reka of stóran flota? Er það hagkvænu byggðalög- um úti á landi að reka starfsemi umfram getu? Það vantar í dag rannsóknarverkefni sem snúa að gæðaendurbótum og þarfnast líffræðilegrar og tæknilegrar undirstöðu, sem væri tilefni til sam- vinnu. Ennfremur rannsóknir á ástandi hráefnis upp úr sjó sem getur verið mismunandi. Svavar Ármannsson - bað um skilgreiningu á hugtakinu framleiðni. Þetta væri nauðsynlegt til að átta sig á stöðu mála. Hjalti Einarsson - bað menn að fara varlega með forsendur skýrslunnar því þær ákvörðuðu niður- stöðurnar. Ýmislegt hefði hann viljað umorða og lagfæra í skýrslunni. Hve of stór væri flotinn þegar tillit væri tekið til vertíðar, árstiðar, gæða og samræmingar vinnslu? Taldi Hjalti að atvinnu- tækifæri í fiskiðnaði væru vanmetin. Fram- kvæmdastofnun áætlaði að 12000 manns yrðu í fiskiðnaði árið 2000. Þetta gæti orðið hærra, enda mikið af fiski sem ekki færi í vinnslu vegna skorts á mannafla. Varhugavert væri að fækka hásetum til sjós ef gæði aflans ættu að batna. Við íslendingar trúum að íslenski fiskurinn sé betri á bragðið en sá kanadíski sem selst undir verði og er ekki eins góður. Samt væri hann ekki viss um að karfinn væri betri héðan. Kanadamenn hafa minni karfa sem fellur betur að þeirra smekk. Ekki gat Hjalti heldur tekið undir þá skoðun í bókinni að draga muni úr stækkun fiskvinnslustöðva og kaupum skipa. Heldur ættu stöðvarnar eftir að stækka. Vandamál væru ekki i dag að manna skip með heimamönnum. Þó taldi hann að skipta mætti milli fiskiskipa, þ.e.a.s. veiðitækni væri ekki ósamrýmanleg. Að lokum kvaðst Hjalti sammála um að takmarka yrði úthaldstíma togara og að ekki ætti að vinna fisk eldri en 9 daga. Mynd 15. (Ljósm. Helga Fielz). Björn Dagbjartsson - lagði áherslu á það að þessi skýrsla væri ekki óskalisti nefndarmanna heldur skoðun þeirra á liklegri þróun. Skipting afla á skip væri tiltölulega auðveld. Helmingur þorskaflans kæmi á togara og 2/3 hlutar af því sem eftir er a vertíðarbáta. Varðandi samsetningu hópsins þa væru ekki bara sérfræðingar í honum. Benti hann á Jón Ármann og Pál Guðmundsson og hafði nefndin samband við marga aðila til viðbótar. Vilhjálmur Lúðvíksson — ræddi um hvaða nieð' höndlun skýrslan fengi. Hún væri þáttur í LTA Rannsóknaráðs. Vafasamt væri að það þjónaðj nokkrum sérstökum tilgangi að breyta skýrslunnj miðað við framkomnar athugasemdir, enda yrði skýrslan fljótt úrelt í ýmsum tölulegum efnum- Athugasemdirnar kæmu þó inn í LTÁ og þar yrð> tekið tillit til sjónarmiða fundarins. Fleira gerðist ekki og var fundi slitið. 606 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.