Ægir - 01.11.1981, Blaðsíða 59
Nýr skólastjóri við
Stýrimannaskóiann í Reykjavík
ÆGIR óskar Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni far-
sældar í hinu nýja og þýðingarmikla starfi hans.
B.H.
Guðjón Ármann
Eyjólfsson hefur tekið
við starfi skólastjóra við
Stýrimannaskólann í
Reykjavík, en Jónas Sig-
urðsson lét af störfum
fyrir aldurs sakir í sumar
eftir langt og heilladrjúgt
starf við skólann í hart-
nær 40 ár, þar af sem
skólastjóri frá árinu
1962.
Guðjón Ármann er fæddur í Vestmannaeyjum
10. jan. 1935 og eru foreldrar hans Eyjólfur Gísla-
son skipstjóri og Guðrún Brandsdóttir. Guðjón Ár-
mann útskrifaðist sem stúdent úr máladeild 1955
og 1956 úr stærðfræðideild MR, en þaðan lá leiðin
til Danmerkur og var hann í danska flotanum í tæp
5 ár, hlaut sjóðliðsforingjatign og var síðasta árið
skipherra á tundurduflaslæðara.
Árið 1961 kom Guðjón Ármann heim og réðst
Þá til Landhelgisgæslu íslands og vann þar við sjó-
tnælingar. Árið 1964 var stýrimannaskóli Vest-
mannaeyja settur á stofn og var Guðjón Ármann
fáðinn skólastjóri hans frá upphafi og gengdi því
starfi til ársins 1975, en þá tók hann við stöðu
kennara við Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Auk framangreindra starfa hefur Guðjón Ár-
mann víða komið við. Um miðjan sjötta áratuginn
var hann á sumarsíldveiðum á Gjafari með Rafni
heitnum Kristjánssyni og í seinni tíð hefur hann
notað sumarleyfi sín til að stunda togarasjó-
tnennsku og hefur m.a. verið á Ögra með aflaskip-
stjóranum Brynjólfi Halldórssyni.
Við störf um borð í togurunum hefur Guðjón Ár-
ntann styrkst í þeirri skoðun sinni að siglingartíma
islenskra fiskimanna áður en þeir gerast yfirmenn
megi alls ekki stytta, og færir þau rök fyrir því að
ekki leyfi af að menn verði góðir togaramenn eða
sjómenn almennt á minna en þremur árum, þar
sem starfið sé mjög umfangsmikið og margvíslegt
°8 til samanburðar megi taka, að iðnaðarmennsku
t-d. sé síður en svo erfiðara að nema en togara-
sjómennsku og þurfi iðnaðarmenn þó 4 ár að
jafnaði til að fá sín réttindi.
Formannsskipti hjá Sölusambandi
íslenskra fiskframleiðanda.
A aöaltundi Sölusambands ísl. fiskframleiðenda
fyrir árið 1981, sem haldinn var 10. júlí s.l. lýsti
Tómas Þorvaldsson, stjórnarformaður SÍF því
yfir, að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs, en
Tómas hefur gegnt þessu starfi í 16 ár, og áður var
hann í stjórn samtakanna í 4 ár. Voru Tómasi
færðar þakkir samtakanna fyrir hin geysiumfangs-
miklu og vel unnu störf sem hann hefur leyst af
hendi á þeirra vegum. Auk framangreindra starfa
hefur Tómas um árabil verið umsvifamikill útvegs-
maður og fiskverkandi í Grindavík og er óþarfi að
fara nánar út í störf hans á þeim vettvangi hér og
nú, þar sem allir er einhver afskipti hafa haft af
sjávarútvegi íslendinga þekkja hann af verkum
hans. Tómas átti sæti á Fiskiþingi og jafnframt í
stjórn Fiskifélags íslands um árabil.
Til að taka við stöðu stjórnarformanns SÍF var
kjörinn Þorsteinn Jóhannesson, Reynistað, Garði,
en Þorsteinn hefur verið í stjórn Sölusambands ísl.
fiskframleiðenda s.l. 16 ár og er því vel undirbúinn
til að taka við þessu vandasama starfi. Þorsteinn
Jóhannesson hefur verið skipstjóri og útgerðar-
maður frá árinu 1933. Eftir að Þorsteinn hætti sjó-
mennsku, að kalla, 1956 hefur hann tekið mikinn
þátt í félagsmálum sjávarútvegsins, m.a. tók hann
sæti á Fiskiþingi árið 1960 og hefur átt þar sæti
síðan og frá 1977 hefur hann verið í stjórn Fiskifé-
lags íslands.
ÆGIR óskar Þorsteini Jóhannessyni til ham-
ingju með hið nýja starf hans og jafnframt far-
sældar í starfi áfram sem hingað til. B.H.
ÆGIR — 635