Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1981, Page 36

Ægir - 01.11.1981, Page 36
ingaskip með mikinn fisk frá útgerðinni fórst á leið út. Tekjuafgangur varð þó svo sem að ofan segir, og ísafold gat þess, að Coot hefði borið sig bezt togaranna það ár (Heimir), en þá voru þeir komnir, Jón forseti, Marzinn og Snorri Sturluson. Ef hásetatalan 1907 er rétt í Landhagsskýrslunni, getur skýringin ekki verið önnur en sú að þeir hafi ekki saltað um borð eða mjög lítið. 1908 er mér heldur ekki kunnugt um arðgreiðslur, en af aflabrögðunum að dæma hefur orðið tekju- afgangur það ár. Coot varð svo til um haustið á Keilisnesi og fisk- veiðahlutafélag Faxaflóa þá leyst upp og Indriði segir: „...félagsmenn fengu nær allt hlutaféð, sem þeir höfðu lagt fram í upphafi.“ Coot var að draga Kópanesið, eina af skútum P. Th., frá Reykjavík til Hafnarfjarðar en skútan sleit sig lausa í mynni Hafnarfjarðar, dráttartaugin lenti þá í skrúfunni á Coot og bæði skipin rak uppí Keilisnesið og Coot bar þar járnið, og Kópanesið varð víst að algeru strandi líka. Þá er lokið að segja frá því sem vitað er um útgerð Coots, þessa fyrsta togara okkar. Þó er lengi von á að eitthvað vakni upp um samskipti Einars Þorgilssonar og Fiskveiðahlutafélags Faxaflóa. Eg vona, að Heimir Þorleifsson haldi áfram með togarasögu sína. Hann er að vinna þarft verk, og má vel við una, hvernig hann hefur sloppið frá þessu fyrsta bindi, svo umdeilanleg, sem íslenzk togarasaga hlýtur að verða með allar helztu heim- ildirnar í himnaríki eða sem líklegra er í einhverju útgerðarplássi fyrir handan. í Heimis sporum myndi ég heldur fara á miðilsfund, en skrifa sög- una einvörðungu eftir gerningum á söfnum, og vonandi víkur hann af þeirri braut. ■■■■■•■ ■ •: ... Sp l \ '■ \ \ I r'. < !■# $ ' V £ Snorri Sturluson. 612 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.