Ægir - 01.12.1982, Page 15
hátt og gert var 1975 og 1976. Fyrst verði um breyt-
ingar fjallað af fulltrúum hagsmunaaðila, en síðan
af fulltrúum þingflokka.
Ég veit, að þið eruð sammál því að um slíkar
breytingar þarf að nást sem allra breiðust samstaða.
Þetta er ópólitískt mál, ef ég má orða það svo, en
hins vegar ákaflega mikið hagsmunamál, og mjög
breytilegt að því leyti, fyrir hinar ýmsu byggðir í
kringum landið. Því er nauðsynlegt að um slíkar
breytingar verði ítarlega fjallað og ekki rasað um
ráð fram.
í þessu sambandi er m.a. um það rætt, hvort af-
létta eigi að verulegu leyti þeim bönnum, sem nú
eru ákveðin með lögum, en ákveða slíkt fremur
með reglugerðum og e.t.v. ekki síst skyndilokun-
um. Hér er að sjálfsögðu um mjög mikla breytingu
að ræða og sem vandlega þarf að fjalla um, bæði
með tilliti til hagsmuna einstakra veiða og ein-
stakra landshluta. Að sjálfsögðu þarf jafnframt að
vera tryggt að slíkar breytingar valdi ekki ofveiði
og hættu fyrir viðgang fiskstofnanna. Menn verða
vitanlega að hafa í huga að grundvöllur fiskveiði-
laganna er verndun fiskstofnanna. Markmiðið er að
fiskstofnarnir séu sterkir og veiti hámarksafköst.
Ég geri ekki ráð fyrir að breytingar á fiskveiði-
lögum verði lagðar fram á þessu þingi. Ég geri ráð
fyrir, að um þær verði fjallað áfram i vetur og þær
undirbúnar þannig að leggja megi fram frumvarp
um nýja fiskveiðilöggjöf í upphafi Alþingis
83—84. Hins vegar kann að vera að einstakir þætt-
ir í fiskveiðilögum í dag þarfnist breytinga og er ég
reiðubúinn til þess að leggja fram slíkar tillögur, ef
um þær breytingar er víðtækt samkomulag.
Gæðamálin eru eitt allra stærsta málið, sem um
þarf að fjalla. Við íslendingar höfum lengi stært
okkur af því að framleiða og selja bestu vöru, og
sannarlega hefur íslensk framleiðsla fengið mjög
góða dóma erlendis. Því miður hygg ég að því
verði ekki neitað að á þessu hafa orðið verulegir
brestir upp á síðkastið.
Ég þarf ekki að nefna þau skakkaföll, sem fram-
leiðendur hafa orðið fyrir, t.d. með saltfisk og
skreið, og ég veit að ykkur er kunnugt um að orðið
hefur að kasta mjög miklu magni af fullunnum
frystum vörum. Sem betur fer fóru þær ekki úr
landi.
Um þessi mál hefur að vísu verið fjallað nokkuð
lengi, en sitt sýnist hverjum. Um breytingar á
framleiðslueftirliti lágu tillögur fyrir þegar 1980.
Ég taldi nauðsynlegt að athuga þessi mál nánar.
Ekki má rasa um ráð fram, þótt nauðsynlegt sé að
gripa í taumana sem allra fyrst. Ég skipaði því
fljótlega sérstaka nefnd, sem hlaut nafnið Fisk-
matsráð og fól henni að halda áfram úttekt á
gæðamálum. Þessi nefnd hefur skilað mér áliti.
Hún hefur unnið þannig, að sérstakir ráðgjafar
hafa verið tilkvaddir til að fara um landið. Þetta
eru menn óháðir framleiðslueftirliti og framleið-
endum. Þeir hafa skilað allítarlegri skýrslu, og því
miður, í fáum orðum sagt, kemur í ljós, að þeirra
mati, mjög mikil brotalöm á ferskfiskeftirliti og
mati. Ég er þeirrar skoðunar að á þessu máli þurfi
að taka allt frá veiðum og til loka framleiðslu. Ég
vil alls ekki útiloka að fela megi framleiðendum
víðtækara eftirlit, heldur en þeir hafa nú á sumum
sviðum. Satt best að segja, tel ég líklegt að sú verði
niðurstaðan. Ég tel þó ekki siður mikilvægt að
miklu betur verði samræmt heldur en nú er mat,
bæði á ferskum fiski og afurðum um land allt. Mér
virðist skortur vera á samræmi í störfum hjá mats-
mönnum.
Ég er alls ekki viss um að mjög víðamiklar laga-
breytingar séu nauðsynlegar, þó að þær verði ein-
hverjar. Um þær erum við að fjalla nú í sjávarút-
vegsráðuneytinu. Sömuleiðis er ljóst að reglugerðir
eru að mörgu leyti góðar. Það er t.d. skýrt tekið
fram um 1. flokks bolfisk, að i þann flokk má ekki
fara dauðblóðgaður fiskur, svo eitthvað sé nefnt.
En hve víða um landið er dauðblóðgaður fiskur
metinn í 1. flokk engu að síður? Ég er því þeirrar
skoðunar að það sé fremur framkvæmd matsins,
heldur en lagaramminn og reglugerðir sem þurfa
breytinga við. í raun og veru hygg ég að aldrei
komist gott lag á þetta, nema í fyrsta lagi sé tryggt,
að allir, bæði á sjó og i landi, geri sér grein fyrir
því hvað er fyrsta flokks vara og hvað er nauðsyn-
legt til að tryggja 1. flokks framleiðslu. Og í öðru
lagi að þeir, sem bregðast, geti átt von á refsingu.
Það er oft svo, því miður, að seint verður úr bætt
ef ekki er von á einhvers konar hegningu við brot-
um.
Sjávarútvegsráðuneytið er því með í undirbún-
ingi kynningu á þessu sviði. Mun í. sambandi við
þær breytingar, sem ráðgerðar eru framundan,
fenginn sérstakur maður, sem hefur fengist við
fjölmiðlun, til þess að fara með það mál. Verður
málið kynnt bæði í blöðum, sjónvarpi og útvarpi.
Jafnframt hefur ríkisstjórnin þegar samþykkt að
þær breytingar verði gerðar á lögum, sem nauð-
synlegar kunna að vera í þessu skyni, að svipta megi
ÆGIR — 623