Ægir - 01.12.1982, Qupperneq 23
hagsmuna eigum að gæta, er hægt að þoka málum
tiltölulega hratt fram. Von min er sú, að þetta átak
megi sýna sig að verða til góðs, að því er varðar
öryggismál sjómanna, þegar fram líða stundir.
Ekki verður skilið við þetta mál hér, án þess að
nefna sérstaklega mjög öflugan fjárhagslegan
stuðning, sem Fiskimálasjóður veitti til þessa verk-
efnis. Án þessa stuðnings hefði þessu máli ekki
þokað svo hratt áfram.
í framhaldi af stórmerkum uppfinningum Sig-
munds Jóhannssonar í Vestmannaeyjum á sjósetn-
ingarbúnaði gúmmíbjörgunarbáta, gerði stofnunin
tillögur að íslenskum reglum um losunar- og sjó-
setningarbúnað gúmmibjörgunarbáta í samráði
við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og siglingum.
Reglur þessar voru gefnar út af samgönguráðu-
neytinu 25. júní 1982. Þessar reglur gera ráð fyrir,
að við fyrstu búnaðarskoðun eftir 1. mars 1983,
skuli öll þilfarsfiskiskip búin sjósetningarbúnaði
fyrir gúmmíbjörgunarbáta, sem hægt er að stjórna
frá minnst tveim stöðum, þar með talið frá stjórn-
palli skipsins og við gúmmíbátinn. Við fyrstu bún-
aðarskoðun eftir 1. sept. 1983, skal auk þess,
a.m.k. einn gúmmíbjörgunarbátur í hverju þilfars-
fiskiskipi, vera búinn svonefndum sjóstýribúnaði.
Á öðrum þilfarsskipum skal hvert skip, sem
skoðað er búnaðarskoðun eftir 1. sept. 1983, vera
með sjósetningarbúnaði fyrir gúmmíbjörgunar-
bátana.
Auk þess eru sérákvæði i reglunum, um búnað á
borðháum skipum, til að auðvelda mönnum að
komast í gúmmíbjörgunarbáta. Þar er miðað við
meiri hæð en 5 metra yfir sjávarfleti á kjölréttu
létthlöðnu skipi. Slíkur búnaður getur, samkvæmt
reglum, verið uppblásin renna eða uppblásið rör,
þ.e. slanga, eða annar búnaður, sem háður er
viðurkenningu Siglingamálastofnunar ríkisins fyrir
hvert einstakt skip. í riti Siglingamálastofnunar-
innar, SIGLINGAMÁL nr. 14, frá april 1982, er
lýsing á einum slíkum búnaði.
En reglur eru eitt, framkvæmd þeirra er annað.
Eins og kunnugt er af fréttum, þá hafa Vest-
mannaeyingar þegar komið sjósetningarbúnaði,
Siglingamálastofnun ríkisins stóö fyrir tilraunum í febrúar 1980
með gúmmíbjörgunarbáta í stórsjó og ofviðri úti af Veslfjörð-
um. Myndirnar t.h. gefa nokkra hugmynd um það veður og sjó-
lag sem var við þessar titraunir. Undir brotinu þar sem enginn
bátur sést er gúmmíbátur á kafi í löðrinu, en kom heill út úr því
og á réttum kili.
ÆGIR —631