Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 25
gerð, fram til 1. nóvember 1982. Var útgerðar-
mönnum þessara skipa tilkynnt, að lengri frestur
komi því aðeins til greina, að undirbúningur verks-
ins hafi verið hafinn, og framkvæmdatími verið
ákveðinn.
Þann 1. nóvember 1982 hafði verið gengið frá
skutrennuloka í 14 af þessum skipum, og Siglinga-
málastofnun fengið upplýsingar um undirbúning
að isetningu loka í 12 skip til viðbótar. Þá eru eftir
11 skuttogarar, sem ennþá hafa ekki gengið frá
þessum málum.
Þá vil ég geta um nýjar reglur (J13) um Lyf og
lceknisáhöld í íslenskum skipum. Þessi reglugerð
kom út 25. júní 1982, og hún er til sérprentuð í
lausbla^akerfi Siglingamálastofnunar ríkisins.
Ný lœknabók fyrir sjófarendur er nýkomin út,
sem Sérrit Siglingamálastofnunar ríkisins nr. 2.
Fyrri lækningabók handa sjómönnum var löngu
uppseld. Nýju reglurnar um lyf og læknisáhöld eru
bundnar inn aftast í þessari lækningabók, sem
Siglingamálastofnun ríkisins hefur gefið út í sam-
vinnu við landlækni.
Þessi lækningabók skal vera í öllum skipum
samkvæmt fyrrgreindum reglum.
Þetta sérrit Siglingamálastofnunar ríkisins er til
sölu í stofnuninni og verður til sölu í bókaversl-
unum og í apótekum, sem ganga frá lyfjakistum til
skipa.
Sérrit Siglingamálastofnunar ríkisins nr. 1, sem
nefnist ,,Notkun Gúmmíbjörgunarbáta“ er hins
vegar dreift ókeypis í skipin, og hér á Fiskiþingi
verður því dreift til þeirra, sem þess óska.
í skýrslu Más Elíssonar, fiskimálastjóra, til
Fiskiþings 1982, sem hann flutti hér í gær, gat
hann þess, að ekki hafi þótt fært að lögbinda yfir-
byggða björgunarbáta um borð i flutningaskipum,
og að samkvæmt umsögn siglingamálastjóra, úti-
loki fyrirkomulag margra skipa þessa aðgerð.
Þetta er yfirleitt svo, þegar um eldri skip er að
ræða. Ástæðan er sú, að bátsuglur yfirbyggðra
björgunarbáta eru nokkru stærri en fyrir opna
bjargbáta. Ég hefi hinsvegar áður bent á það, m.a.
í grein í SIGLINGAMÁL, að það er síður en svo
auðveldara að koma föstum yfirbyggðum björg-
unarbátum í sjóinn, við erfiðar aðstæður með
Skissuteikning af tillögu að gúmmíbjörgunarbát með
hringlaga inngangi og sjókjölfestupokum.
A sketch of an inflatable liferaft showing the suggested
circular shape of an entrance opening and water ballast
pockets.
Hringlaga inngangur
með lokunarermj__________
Circular entrance opening
provided with a sleeve-type
closing device
öll mál í cm
Metric measurements (cm)
siglingamAlastofnun RlKISINS
(DIMCTORATI OF ShippinG)
HAMARSHUS. TRYGGVAGATA. P. 0. BOX 484. REYKJAVlK
ÆGIR —633