Ægir - 01.12.1982, Síða 27
skoðanir. Þessi skoðunarmaður ferðaðist um
landið og var mjög vel tekið. Þegar þrengja var
farið að fjárhag stofnunarinnar, voru skyndiskoð-
anir oft framkvæmdar af skoðunarmönnum, sem
voru á ferð vegna annarra skoðana. Nú, þegar
fjárhagur stofnunarinnar er orðinn svo tæpur, að
reksturinn er kominn að stöðvun, hefir ekki verið
hægt að framkvæma neinar slíkar skyndiskoðanir
lengur.
Hinsvegar hefir Siglingamálastofnun ríkisins,
undanfarið, átt ágætt samstarf við Landhelgis-
gæsluna, þannig að þegar varðskipsmenn fara um
borð í islensk fiskiskip á hafi úti, þá athuga þeir
nokkur atriði um borð, er varða öryggi skipanna
og senda Siglingamálastofnun ríkisins skýrslur um
þessar skyndiskoðanir. Þetta hefur reynst ágætt og
aukið aðhald.
Þann 20. september 1982 ritaði siglingamála-
stjóri bréf til Landhelgisgæslunnar, þar sem farið
er fram á enn frekari aðgerðir.
Þar óskar siglingamálastjóri eftir því, að hafi
skip látið úr höfn, eftir að haffærisskírteini þess
var runnið út, eða komnir eru meira en 10 dagar
fram yfir gildistima þess, þá skuli vísa skipi til
hafnar, og að Siglingamálastofnun verði strax látin
vita af slíkum aðgerðum.
Um reglugerð með kröfu um neyðarsenda á
flugvélatíðni, 121.5 MHz og 243 MHz, er það að
segja, að þegar sú fyrsta þessara reglugerða kom
út, var ekki til á markaði neinn neyðarsendir, sem
sendi á þeirri orku, sem krafist var á báðum þess-
um tíðnum samtímis. Þá var til neyðarsendir, sem
sendi á þeirri orku, sem krafist var á 121.5 MHz,
sem er neyðartiðni flugvéla, en á minni orku á 243
MHz, sem er neyðartíðni herflugvéla.
Siglingamálastofnun ríkisins taldi tilkomu þess-
ara senda vera svo mikið öryggisatriði, að rétt væri
að setja þessa gerð neyðarsenda strax í gúmmibáta
íslenskra skipa, en bíða ekki þar til á markaðinn
kæmi annar neyðarsendir, sem sendi á sömu orku
á báðum tiðnum. Samgönguráðherra féllst á þessi
sjónarmið Siglingamálastofnunar, og slíkir
neyðarsendar voru settir í um 500 gúmmíbjörg-
unarbáta. Þessir sendar hafa þegar sannað gildi sitt
og hafa þegar átt afgerandi þátt í björgun manns-
lífa. Þegar annar neyðarsendir kom á markaðinn,
sem sendi á báðum tíðnum 121.5 MHz og 243
MHz var hætt að setja hinn neyðarsendinn í fleiri
gúmmíbjörgunarbáta. En þegar á reyndi kom í
ljós, að framleiðandi þessara nýju senda gat ekki
framleitt nógu marga senda nógu fljótt, þannig að
ekki hefur enn verið hægt að pakka þessum neyð-
arsendum í alla þá gúmmibjargbáta, sem reglunar
krefjast. Marga gúmmíbjargbáta verður því nú að
pakka án neyðasenda.
Nú er verið að prófa þriðju gerð neyðarsenda,
sem sendir á 121.5 MHz og 243 MHz með sömu
orku á báðum tíðnum. Póstur- og sími hefir þegar
lokið prófun þessara senda og getur, fyrir sitt leyti,
viðurkennt þá, en Siglingamálastofnun ríkisins er
með þessa senda í prófun á hafi úti. Þegar þeim
prófunum er lokið, verður meira framboð þessara
senda, ef þeir reynast vel við erfiðar aðstæður á
hafi úti.
Annars verða mjög sennilega allir þessir neyðar-
sendar orðnir úreltir innan fárra ára.
í ritinu SIGLINGAMÁL, apríl 1982, er skýrt frá
gerfihnattakerfinu INMARSAT, en upphaf þess
alþjóðafjarskiptakerfis er, að á þingi Alþjóðasigl-
ingamálastofnunarinnar IMCO (nú IMO), í
London árið 1973, var ákveðið að setja á stofn al-
þjóðafjarskiptakerfi fyrir skip með notkun gerfi-
hnatta. í þessu neyðarkallkerfi verða notaðar há-
tíðni neyðarsendingar allt að 16 MHz. Þetta fjar-
skiptakerfi er þegar komið í notkun, og þess verð-
ur varla langt að bíða, að íslensk skip fari að nota
það. — Þá mun þykja jafn sjálfsagt að hringja til
skyldmenna á hafi úti, eins og nú er um símtöl inn-
an lands eða milli landa.
Góðir þingfulltrúar. Mér er ljóst, að þetta er
orðið óhóflega langt mál hjá mér, — miklu lengra
en ég ætlaði, en efnið er nær ótæmandi.
Þótt ég gjarnan hefði viljað ræða fleiri atriði, þá
læt ég hér staðar numið í þetta sinn, og þakka vil
ég að lokum þolinmæði ykkar að hlusta.
Þá mun ég sýna ykkur kennslukvikmynd Sigl-
ingamálastofnunar ríkisins, um notkun gúmmí-
björgunarbáta. Hér er um að ræða frumsýningu
hennar, eftir að sjósetingarbúnaði gúmmíbjörg-
unarbáta hefir verið bætt inn í hana.
ÆGIR —635