Ægir - 01.12.1982, Síða 54
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er Normo (A/S Bergens Mek.
Verksteder) af gerðinni LDMB 9, níu strokka fjór-
gengisvél með forþjöppu og eftirkælingu, sem skil-
ar 1700 hö við 825 sn/mín. Vélin tengist gegnum
kúplingu niðurfærslugír frá Volda/Liaaan af gerð
ACG 500, niðurfærsla 2.83:1, og skiptiskrúfubún-
aði frá Hjelset af gerð 63/4. Skrúfa er 4ra blaða úr
bronsi, þvermál 2150 mm, snúningshraði 292
sn/mín, og er skrúfa búin föstum skrúfuhring frá
Helix.
Við fremra aflúttak aðalvélar tengist deiligír,
með innbyggðri kúplingu, frá Hytek af gerð FC
1250 með úttök fyrir fjórar vökvaþrýstidælur, sem
eru fyrir vindur skipsins. Dælur drifnar af aðalvél
um deiligír eru: tvær Allweiler SNH 1700, afköst
1800 1/mín við 1600 sn/mín hvor, og tvær Allweil-
er SNGH 940, afköst 1000 1/mín við 1600 sn/mín
hvor.
Hjálparvélar eru tvær Volvo Penta, gerð TMD
120 AK, sex strokka fjórgengisvélar með
forþjöppu, sem skila 223 hö við 1500 sn/mín.
Hvor vél knýr Newage Stamford riðstraumsrafal
af gerð MC 43 A, 152 KW (190 KVA), 3x380 V, 50
Hz.
Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Ten-
fjord, gerð I-160-2ESG-425, snúningsvægi 3600
kpm.
í skipinu eru tvær Alfa Laval skilvindur af gerð
MAB 103 B-24, önnur fyrir brennsluoliu og hin
fyrir smurolíu. Ræsiloftþjöppur eru tvær, raf-
drifnar, frá J.P. Sauer, afköst 17.4 mVklst við 30
kp/cm2 þrýsting hvor. Fyrir vélarúm og loftnotkun
véla eru tveir rafdrifnir blásarar frá Norsk Vifte-
fabrik, afköst 14000 mVklst hvor.
Skipið hefur svonefnt EO-flokkunartákn, sem
þýðir að það uppfyllir kröfur um timaþundið vakt-
frítt vélarúm.
Rafkerfi skipsins er 380 V riðstraumur fyrir raf-
mótora og stærri notendur, en 220 V riðstraumur
til ljósa og almennra nota í ibúðum. Fyrir 220 V
kerfið eru tveir 63 KVA spennar 380/220 V. Rafala
er mögulegt að samkeyra. í skipinu er 125 A, 380 V
landtenging.
Taknmælikerfi er frá Peilo Teknikk A/S af gerð
Soundfast, aflestur í vélarúmi.
íbúðir eru hitaðar upp með rafmagnsofnum.
Fyrir upphitun á neyzluvatni er 300 1 hitakútur
með 6 KW rafelementi, íbúðir eru loftræstar með
rafdrifnum blásurum frá Norsk Viftefabrik, fyrir
innblástur er einn blásari með rafelementi í loftrás,
afköst 2200 mVklst, og fyrir eldhús og snyrtingu
eru sogblásarar frá Norsk Viftefabrik, afköst 500
m3/klst hvor. Fyrir vinnuþilfar er einn blásari
frá Norsk Viftefabrik, afköst 1500 m3/klst. Fyrir
hreinlætiskerfi eru tvö vatnsþrýstikerfi frá Bryne
Mek. Verksted A/S af gerð 1840, annað fyrir sjó
með 150 1 þrýstigeymi en hitt fyrir ferskvatn með
200 1 þrýstigeymi.
Fyrir lágþrýstivinduþúnað skipsins er vökva-
þrýstikerfi með fjórum áðurnefndum dælum,
drifnum af aðalvél um deiligír, og tveimur vara-
dælum, sem einnig þjóna átaksjöfnunarbúnaði
togvindna. Dælurnar eru frá Allweiler af gerð SNF
120. Fyrir krana er sjálfstætt rafknúið vökva-
þrýstikerfi. Fyrir fiskilúgu, skutrennuloku,
færibönd o.fl. eru tvö sjálfstæð rafknúin vökva-
þrýstikerfi. Stýrisvél er búin tveimur rafdrifnum
vökvaþrýstidælum.
Kæliþjöppur fyrir lestar (og upphaflega frysti-
tæki) eru tvær frá Grasso, önnur af gerð RC 49,
afköst 37500 kcal/klst, og hin af gerð RC 429, af-
köst 53100 kcal/klst, kælimiðill Freon 22. Mat-
vælageymslur eru búnar sjálfstæðu kælikerfi,
tveimur Tecumseh kæliþjöppum.
íbúðir:
Á neðra þilfari er fremst s.b.-megin 2ja manna
klefi, þá borðsalur, eldhús, matvælageymslur, þ.e.
ókæld geymsla, kæli- og frystigeymsla, og aftast
þvottaherbergi og stakkageymsla með sturtuklefa
og salernisklefa. B.b.-megin fremst er einn 2ja
manna klefi.
Á efra þilfari, s.b.-megin, eru þrír 2ja manna
klefar fremst og aftast einn eins-manns klefi og til
hliðar við hann salernisklefi og sturtuklefi. B.b.-
megin er fremst einn 2ja manna klefi, þá tveir eins
manns klefar og aftast skipstjórnaklefi með sér
snyrtingu.
Útveggir og loft í íbúðum eru einangraðir með
100 mm glerull og klætt innan á með plasthúð-
uðum spónaplötum.
Vinnuþilfar:
Vökvaknúin fiskilúga er framan við skutrennu
og veitir aðgang að fiskmóttöku, aftast á vinnuþil-
fari. í efri brún skutrennu er vökvaknúin skut-
rennuloka, sem er felld lóðrétt niður.
Fiskmóttaka er U-laga, full breidd aftantil en
þar framan við skipta langþil móttökunni í tvö
662 — ÆGIR