Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1984, Page 18

Ægir - 01.04.1984, Page 18
Aðalsteinn Sigurðsson: Dragnótaveiðar í Faxaflóa 1983 Á dragnótavertíðinni í Faxaflóa 15. júlí til 15. nóv- ember 1983 fengu 7 bátar leyfi til veiðanna. Aflinn var unninn í fjórum vinnslustöðvum. Handhafar veiðileyfanna urðu, eins og að undan- förnu, að uppfylla ýmis skilyrði. Par á meðal mátti bolfiskur ekki fara yfir 15% af afla hverrar viku og möskvastærð í belg og poka dragnótanna mátti ekki vera undir 155 mm. Veiðisvæðið var stækkað þannig að norðaustanverður flóinn frá Hjörsey norður í Haf- ursfjörð var opnaður. Þangað var þó fremur lítið sótt (1. tafla) og róðrar þar urðu ekki nema 21 og skar- kolaflinn tæpar 70 smálestir og annar afli um 4 smá- lestir. Skarkolinn reyndist stærri þar en sunnar í flóanum. Búast má við, að meira verði sótt á þetta svæði þegar skipstjórarnir kynnast því betur. Hafrannsóknastofnunin lét fylgjast með veiðunum eftir því sem þurfa þótti, en þar að auki fylgdist sjáv- arútvegsráðuneytið daglega með lönduðum afla og gerði ólöglegan afla upptækan. Á 2. töflu má sjá hvernig aflinn skiptist á milli fisk- tegunda og mánaða. Þar má einnig sjá meðalafla á tog og í róðri. Yfirleitt var afli miðaður við fyrirhöfn mestur í byrjun vertíðar, en fór minnkandi eftir því sem á hana leið. Hvað skarkolann varðar stafar þetta að einhverju leyti af því, að kynþroska hluti stofnsins byrjar að ganga í átt að hrygningarstöðvum ekki síðar en í október. Undir lok vertíðar jókst það, sem í töfl- unni er kallað annar fiskur. Ástæðan er sú, að þá var sandkoli unninn í Sjöstjörnunni í Ytri-Njarðvík og var hann því hirtur á þeim bátum, sem þar lögðu upp. Annar fiskur, sem skráður er í töflunni í október og nóvember er því sandkoli. Vel er, ef hægt er að nýta sandkolann, því að undanförnu hefir hann einungis keppt við nytjafiska um fæðu. Á 1. mynd og 2. töflu má sjá, að yfirgnæfandi meirihluti dragnótaaflans úr Faxaflóa 1983 var skarkoli eins og til var ætlast. Afl- inn skiptist þannig að 84,4% var skarkoli, 3,3% lúða, 3,1% ýsa, 7,9% þorskur, 0,3% steinbítur, 0,9% sandkoli og 0,1% skötuselur ogskata. Talsvert veidd- ist af tindabikkju og sandkola, sem hvorki var hirt ne tíundað. Eins og sjá má á 2. töflu og 2. mynd þá veiddist nokkru meira af ýsu og þorski í júlí og nóvember en leyfilegt var, en þrátt fyrir það var heildaraflinn af þessum tegundum ekki nema 145 smál. af þorski og 57 smál. af ýsu, sem er aðeins örlítið brot af heildar- afla af þessum tegundum hér við land á árinu og hefú því litla þýðingu fyrir afkomu stofnanna. Á 3. mynd og á 2. töflu má sjá hvernig afli í róðn skiptist á milli tegunda og eftir mánuðum. /. mynd. Hlutfallsleg skipdng dragnótaaflans úr Faxafló“ 1983 á milli tegunda. 186-ÆGlR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.