Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1985, Page 54

Ægir - 01.02.1985, Page 54
NÝ FISKISKIP Á s.l. ári bættust við flotann þrjú ný fiskiskip, smíðuð í Póllandi. Fyrstu tvö skipin, Gideon VE og Flalkion VE, voru smíðuð fyrir Vestmannaeyinga en hið þriðja, Jökull SFI, fyrir Ólafsvíkinga. Skipin eru systurskip, smíðuð eftirsömu teikningu, en ákveðin frávik eru í búnaði Jökuls frá tveimur fyrri. Skipin eru smíðuð hjá skipasmíðastöðinni Stocz- nia Polnocna i.m. Bohaterow Westerplatte í Gdansk. Skipin eru sérstaklega smíðuð til togveiða með skuttogarafyrirkomulagi en eru jafnframt búin til annarra veiða. Þar sem Gideon og Flalkion eru búin sama véla- og tækjabúnaði, auk þess að vera í eigu sama fyrirtækis, verður sameiginleg umfjöllun um þessi tvöskip íþessu tölublaði. Lýsingsem hérfer á eftir á við hvort skipið sem er. Gideon og FLalkion eru í eigu Samtogs s.f. í Vestmannaeyjum. Fram- kvæmdastjóri útgerðar er Gísli Jónasson. Almenn lýsing Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og undir eftirliti Lloyd's Register of Shipping í flokki V 100 Al, Stern Trawler, lce Class 3, >5 LMC. Skipiðer tveggja þilfara fiskiskip með perustefni, gafllaga skut, skutrennu upp á efra þilfar og stýrishús á reisn framanti I á efra þi Ifari og er bú ið ti I tog- og nótveiða- Mesta lengd ............................ 32.73 m Lengd milli lóðlína .................... 29.00 m Breidd .................................. 8.00 m Dýpt að efra þilfari .................... 6.32 m Dýpt að neðra þilfari ................... 4.00 m Eiginþyngd ............................... 391 t Særými (djúprista 3.95m) ................. 578 t Burðargeta (djúprista 3.95m) ............. 187 t Lestarrými ............................... 189 m3 Brennsluolíugeymar ...................... 46.5 m3 Daggeymir ................................ 3.1 m3 Ferskvatnsgeymar......................... 22.3 m3 Sjókjölfestugeymir ....................... 5.8 m3 Ganghraði (reynslusigling) .............. 10.9 hn Rúmlestatala ............................. 222 brl. Gideon VE 104 Gideon VE 104 kom til heimahafnar sinnar 22. marz á s.l. ári og er smíðanúmer B277/1 hjá stöð- inni. Skipið ber skipaskrárnúmerið 1651. Skipstjóri á Gideon VE er Helgi Ágústsson og 1. vélstjóri Bergvin Fannar Jónsson. Halkion VE 105 Halkion VE 105 kom til heimahafnar sinnar 5- maí á s.l. ári og er smíðanúmer B277/2 hjá stöðinn1; Skipið ber skipaskrárnúmerið 1652. Skipstjóri n Halkion VEer Atli Sigurðssonog 1. vélstjóri Sigurþór Óskarsson. Gideon í reynslusiglingu. Halkion VE við bryggju í Vestmannaeyjum. 102-ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.