Ægir - 01.06.1985, Blaðsíða 26
Hringið
og fáið
„RÆKJUKASSAR"
Eigum oftast til á lager ýmsar stærðir
af plastkössum, til notkunartil sjósog
lands.
Viljum sérstaklega minna á okkar
vinsælu Rækjukassa í stærðum 35 og
57 Itr. -sem eru vel þekktir hjáöllum
Rækjuvinnslustöðvum - í gegnum
árin.
frekari
upplýsingar.
Nýbýlaveg 8 (Dalbrekku megin)
200 Kópavogur - Sími 46216.
VINNUEFTIRLIT RIKISINS
Síöumúla 13-105 Reykjavík. Sími 82970
Tiikynníng tii atvinnurekenda um vinnu barna og ungmenfl^
Um þessar mundir kemur margt ungt fólk til starfa sem þaö hefur litla eöa enga starfsreynslu
af. Undanfarin ár hafa alvarleg vinnuslys veriö mun tíðari hjá ungu fólki en þeim sem eldri eru.
Vegna þessa vekur Vinnueftirlit ríkisins athygli atvinnurekenda á eftirtöldum ákvæöum laga
nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum:
• Atvinnurekandi skal gera starfsmönnum sínum Ijósa slysa- og sjúkdómshættu sem kann
aö vera bundin starfi þeirra. Atvinnurekandi skal þar aö auki sjá um að starfsmenn fái nauð-
synlega kennslu og þjálfun í aöframkvæma störf sínáþann hátt, aö ekki stafi hættaaf (14.
gr.).
• Börn má ekki ráöa nema til léttra, hættulítilla starfa. (59. og 60. gr. Barn merkir í lögunum
einstakling inna 14 ára aldurs). Störf, sem ekki má ráða börn til, eru t.d. uppskipun, vinna
við hættulegar kringumstæður eða vélar sem valdið geta slysi, meðferð hættulegra efna
eða þau störf er hafa í för með sér slíkt andlegt og/eða líkamlegt álag að hamlað geti vexti
þeirra og þroska, sbr. ennfremur lög nr. 53/1966 um vernd barna og ungmenna.
• Unglingar, 14 og 15 ára, mega ekki vinna lengur en 10 klst. á dag og skal vinnutíminn vera
samfelldur. Þeir, sem eru 16 og 17 ára, skulu hafa minnst 12 tíma hvíld á sólarhring og skal
hvíldartiminn að jafnaði vera á tímabilinu milli kl. 19 og 7.
Öryggistrúnaðarmenn starfsmanna eða félagslegir trúnaðamenn skulu fylgjast með því að
farið sé að ofangreindum ákvæðum. Reykjavík, 28. maí 1985.
Geymið auglýsinguna og festið upp á vinnustöðuin.
318-ÆGIR