Ægir - 01.09.1985, Síða 19
,s and í landbúnaðinum ef allur
n utningur yrði bannaður á
rattarvélum og bændur neydd-
s að halda gömlu vélunum
an8andi hvað sem það kostaði.
^sama tíma °g innlendar skipa-
fMc* a^t°ðvar fá ekki að smíða
l'.S ls^'P/ virðist enginn hörgull á
.ansfé til að breyta skuttogurum í
^ystitogara. Og spyrja má hvort
e nagkvæmara fyrir þjóðabúið
rg a^ornu fólks í landinu. Stað-
Vndin er sú að sjávarútveginum
,r aldið í fjársvelti og því komið
fyir nauðsynlega endurnýj-
hans. Þetta mun að margra
f at' ^eiða til alvarlegs ástands
v rir þennan undirstöðuatvinnu-
s 'andsmanna. Og spurningin
í r nvenær Skipasmíðastöðin á
4lr^' fer að glíma við verkefni
v'° hæfi.
^'mildarmenn: Sævar Birgisson og
inrf^igu.ðsson hjá Skipasmíðastöð-
Slippurinn
Á Suðurtanganum á ísafirði,
fyrir neðan, Skipasmíðastöðina,
er stór dráttarbraut sem er í eigu
M. Berharðssonar h.f. Það fyrir-
tæki hefur hætt starfsemi fyrir
nokkru.
Skipasmíðastöð Marsellíusar
hefur leigt slippinn undanfarið og
haft af honum talsverða atvinnu
við viðgerðir og viðhald skipa.
Skipasmíðastöðin hefur þó ekki
bolmagn til að kaupa slippinn, en
eigendurnir vilja gjarnan selja.
Hafa menn helst komið auga á
bæinn sem kaupanda, þar sem
það hefur lengi verið áhugamál í
bænum að koma upp stórri drátt-
arbraut á ísafirði sem gæti þjón-
ustað skuttogarana sem héðan
ganga og úr nágrannabyggðun-
um. En til þess þyrfti að stækka
núverandi dráttarbraut.
Málið er nú í biðstöðu eftir að
úttekt á slippnum var gerð á
vegum Vita- og hafnarmálastofn-
unar í vetur. Niðurstaða skýrsl-
unnar var sú að slippurinn bæri
ekki nema um 50 tonn. Aðstand-
endur slippsins, sem hafa unnið
að endurbótum á honum undan-
farin ár telja þetta mat fáránlegt.
Samkvæmt þeirra mati gæti
brautin tekið upp skip allt að 600
þungatonnum og með endurbót-
um upp í 800 þungatonn. Þannig
er slippmálið nú strand í bili.
Áður fyrr gátu ísfirðingar tekið
upp fiskiskip sín og unnið að við-
haldi og endurbótum á þeim
sjálfir. Sú atvinna og sá arður sem
af slíku má hafa er mikilvægur
öllum byggðarlögum. Síðan skut-
togarar komu til ísafjarðar hafa
þeir þurft að sigla í aðra lands-
hluta til að komast í slipp. Það er
til þess sem ísfirðingar líta þegar
þessi mál eru á döfinni.
óvjSs r®raut'n á Suðurtanga. Framtíð hennar er í mikilli
u meðan deilt er um burðargetuna.
Frá gamla slippnum í Neðsta. Þar smíðaði Marsellíus sín fyrstu
skip. I sumar var þetta snotra fley í slippnum til viðgerðar.
ÆGIR-503