Ægir - 01.09.1985, Blaðsíða 44
mannaskólann, en sjálfur haföi
Jónas hönd í bagga með starfi
beirra og fylgdist með því.
Námsvísirinn reyndist strax hið
þarfasta vinnuplagg við
kennsluna og breytingu á
skipulagi hennar.
Síðan 1981 hafa orðið tals-
verðar breytingar á kennslu.
Námsvísirinn hefur verið
endurskoðaður á hverju skóla-
ári í Ijósi reynslu og breyttra
viðhorfa. Eins og segir í 1
útgáfu: „enda er til þess ætlast
að þessi námsvísir verði endur-
skoðaður á næsta skólaári
(1981-1982) og helst árlega
hér eftir". Ekki hefur þó orðið af
endurútgáfu námsvísis fyrr en
nú.
Strax haustið 1981 voru t.d.
gerðar a11 róttækar breytingar
á námsefni varðskipadeildar,
sem haldin vará vorönn 1982.
Að dómi nemenda og kennara
í deildinni reyndist sú skipan
ágætlega nema að námsskrá
þótti stif og full mikið var færst
í fang á ekki lengri námstíma.
Lenging þeirrar deildar og
stofnun sér skipstjóradeildar er
því mikil nauðsyn.
Helstu breytingar á skólastarf-
inu frá 1. útgáfu eru að annir
skólans eru nú afmarkaðri með
skiptingu um áramót og
kennsla hefur lengst um 2-3
vikur. Skólaárið hefst nú 1.
september í stað 1. október
áður og próf haustannar eru
haldin fyrir jólafrí. Þetta er í
samræmi við aðra framhalds-
skóla og hefur með þessu feng-
ist betri nýting á haustönn, en
hvor námsönn er um 13
kennsluvikur auk prófa.
Kennslu í tækjum hefur á 1. og
2. stigi verið skipt í þrjár deild-
ir:
1. Ratsjárdeild og stofu með
himintunglamóttakara og átta-
vitum í turni.
2. Lórandeild með lóran-
tækjum, kortaskrifara og
radíómiðunarstöð í tækja-
húsi.
3. Deild dýptar- og fiski-
leitartækja á 1. hæð við hlið
sjóvinnusalar.
Allmörg tæki hafa bæst við í
skólann á undanförnum árum;
má hér nefna tvö ratsjártæki í
turni, tvo dýptarmæla og er
annar þeirra litamælir, tvö lór-
antæki og lóranskrifari. Allar
tækjadeildir eru búnar sam-
líkjum (simulator). Árið 1985
var. tekin í notkun mjög full-
komin ratsjá — tölvuratsjá
(ARPA) tengd við samlíki og
tölvu í tækjahúsi. Þar eru nú
þrjú ratsjártæki tölvustýrð til
æfinga fyrir nemendur í ratsjár-
siglingum og ratsjárútsetn-
ingum (plotti) ásamt siglingum
með ströndum fram, bæði hér
við land og í Ermarsundi. Auk
þess er sérstakt ratsjártæki og
stjórnskjár fyrir kennara. Á
næstunni er ætlunin að auka
kennslu og tækjakost í meðferð
loftskeytatækja.
Á vorönn árið 1983 hófst
kennsla á 3. stigi í forritun og
notkun tölva, en skólinn keypti
átta Apple 2-e tölvur ásamt
Vélskóla íslands og hafa
skólarnir sameiginlega tölvu-
stofu. Skólaárið 1983-1984
var einnig tekin upp kennsla á
tölvur í 2. stigi. Kennsla í ensku
hefur verið aukin á öllurn
stigum á undanförnum fjórum
árum. Þá hefur verið tekin upp
kennsla í fiskmeðferð á haust-
önn í 1. bekk.
Með prentun námsvísis og
útgáfu hans í minna °S
aðgengilegra broti er ætlunin
að hann verði bæði kennurum
og nemendum aðgengilegri en
1. útgáfa var, en auk þess hefur
verið bætt framan við námsvís-
inn skólareglum og upplý5'
ingum um stjórn skólans og
rekstur.
Nýtt frumvarp til laga um stýri'
mannamenntun mun verða
lagt fyrir næsta Alþingi (1985-
1986). í kjölfar nýrra laga
verður að endurskoða bæð'
námsskrá og prófreglugerð
Stýrimannaskólans. Endurút-
gáfa námsvísis nú getur mjög
auðveldað það verk og gert
það betur úr garði.
Nauðsynlegt er að endurútgefa
námsvísinn í lok hvers skóla-
árs.
í sambandi við almennar
skólareglur, reglur um
umgengni o.fl. var höfð hlið-
sjón af námsvísi Vélskóla
íslands og Iðnskólans í Reykja-
vík.
Endurskoðun og frágangur 2-
útgáfu hefur aðallega hvílt á
Benedikt H. Alfonssyni og
undirrituðum, að viðhöföu
samráði við fagstjóra í kennslu-
greinum Stýrimannaskólans.
Námsvísir, skólaárið 1985-
1986, ertilsölu íStýrimannaskól-
anum og kostar 200 kr. eintakið-
528-ÆGIR