Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1989, Side 31

Ægir - 01.04.1989, Side 31
4/89 ÆGIR 195 Eins og fram kemur að ofan var þorskalýsi flutt út til 24ra landa á árinu 1988. Þegar mest var, var ■ýsið selt til meira en 50 landa og hafa fáar íslenskar afurðir náð svo rr,ikilli útbreiðslu. Hin mikla eftir- spurn eftir þorskalýsi, aðallega á ^orðurlöndunum, samfara strang- ari kröfum um gæði, hefur leitt til þess að íslenska lýsið er orðið of dýrt fyrir fjölmarga smærri kaup- endur og viðskiptalöndunum hefur því fækkað mikið. Þessi þróun er áhyggjuefni þegar til 'engri tíma er litið, því að þessi ^nikla þreidd markaðarins tryggði stöðugri eftirspurn og verðlag ásamt vörn gagnvart stað- bundnum versnandi skilyrðum á hluta hans. Sú verðhækkun, sem varð á meðalalýsi haustið 1987, ýtti undir þá ákvörðun að selja fyrir- fram mikinn hluta af væntanlegri framleiðslu ársins 1988, en raunin varð sú að minni framleiðsla en áætluð var gerði ekki meira en að uppfylla gerða samninga, síðast- liðið haust leit því út fyrir að verð mundi halda áfram að hækka, en um síðustu áramót dró skyndilega úr eftirspurn. Verð hefur enn ekki lækkað, en Ijóst er að minnstu breytingar á ytri aðstæðum, svo sem aukin framleiðsla í Noregi, mundu fljótt geta leitt til verðlækk- ana. Vítamíninnihald íslenska lýsis- ins var enn lágt fimmta árið í röð. Vestur- og Norðurlandslýsið náði t.d. ekki 500 alþjóðlegum A- vítamín einingum, en lyfjaskrár krefjast 850 eða 1000 eininga sem lágmarks A-vítamíninnihalds. Höfundur er framkvæmdastjóri Bernh. Petersen. Síldarútvegsnefnd (SÚN) Garðastræti 37, 101 Reykjavík Pósthólf 610 •Sími 27300•Telex 2027 Telefax 25490 Helztu verkefni: • Markaósleit, sala og útflutningur á öllum tegundum saltsíldar. • Skipulagning síldarsöltunarinnar í þeim tilgangi að nýta sem bezt hina ýmsu og ólíku markaði fyrir allar tegundir og stærðir saltaörar síldar. • Innkaup, sala, dreifing rekstrarvara saltsíldariðnaðarins. • Rekstur birgðastöðva. Stjórn stofnunarinnar er skipuð 3 fulltrúum frá félögum síldar- saltenda, 1 fulltrúa frá Alþýöusambandi Íslands/Sjómannasam- bandi íslands, 1 fulltrúa frá Landssambandi ísl. útvegsmanna og 3 fulltrúum kjörnum af Alþingi.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.