Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1989, Page 36

Ægir - 01.04.1989, Page 36
200 ÆGIR 4/89 sérstaka heimild til þess - neta- veiðileyfi. Utan þessa tíma voru engin aflahámörk. Þá var öllum smábátum bannað að róa til fiskjar frá 1. janúar til og með 15. janúar, 10 daga um páska, 7 daga í júní, 10 daga í ágúst, 7 daga í október og frá 15. desember til og með 31. desember eða samtals 66 daga. Aðrar takmarkanir voru ekki á smábátum. 1986 stunduðu 1.197 smábátar veiðar, hafði fjölgað um 4,5% og nam heildarafli þeirra 36.880 tonnum. Af þeim afla var þorskur 30.757 tonn og hafði hann farið 5.257 tonnum fram úr því sem sjávarútvegsráðuneytið hafði hei- milað sem voru 25.500 tonn, þ.e. 21%. Þess má geta að þetta ár voru það ekki eingöngu smábátar sem fóru fram úr heimiluðum aflahá- mörkum. Gert hafði verið ráð fyrir að heildarþorskafli yrði 300.000 tonn en varð hins vegar 365.859 tonn eða um 22% fram yfir. 1987 A því ári voru veiðiheimildir þær sömu og verið hafði árið á undan þar sem lögin giltu til 2ja ára. Þá stunduðu 1.346 smábátar veiðar, hafði fjölgað um 12.5% eða um 149 frá árinu áður. Heildarafli þeirra varð 43.110 tonn, af þeim afla var þorskur 36.297 tonn og hafði hann aukist um 5.540 tonn á milli ára, þ.e. um 18%. 1988 Þá var gerð róttæk breyting á veiðiheimildum smábáta. Aflahá- mörk voru sett á hvern bát sem stundaði netaveiðar og bann- dögum var fjölgað um 5 hjá línu- og handfærabátum, þá var öllum bátum 6 brl. og stærri skylt að fá veiðileyfi. Alþingi ákvað einnig að stemma stigu við fjölgun smábáta og setti í því skyni lagaákvæði sem hvað á um að engin nýr bátur 6 brl. og stærri fengi veiðileyfi nema að því tilskyldu að sambærilegur bátur hyrfi úr rekstri. í aðalatriðum voru reglur fyrir smábáta tvenns konar: 1. Netaveiðileyfi fengu aðeins þeir bátar sem voru 6 brl. og stærri og þeir bátar undir 6 brl. sem stundað höfðu netaveiðar '86 eða '87. Bátar sem kusu að fá netaveiðileyfi, var skylt að hlýta aflahámarki sem mælt var í óslægðum afla. Aflamörkin voru á 2 vegu: a) Háð stærð bátsins, þ.a. minni en 6 brl fengu 60 tonn, 6-7,99 brl. 75 tonn, 8-9,5 brl. 100 tonn og allra stærstu og dýrustu bátarnir fengu 125 tonn. b) Háð 90% af aflareynslu 2ja bestu áranna '85, '86 og '87, þó aldrei hærra en 200 tonn eða 70% af afla ársins '87. 2. Leyfi til að stunda línu- og handfæraveiðar án aflahá- marks með svokölluðu bann- dagafyrirkomulagi samtals 71 dagur. Þá höfðu menn heimild til að velja sér aflahámark sem tók við af aflareynslu sam- kvæmt sömu reglum eins og áður er greint frá, á línu- og handfæraveiðum. Þessar reglur höfðu í för með sér mikla breytingu. Þeir bátar sem aflað höfðu hvað mest undanfarin ár urðu fyrir mikilli skerðingu. Má nefna því til staðfestingar að 7 brl. netabátur sem hafði heimild til að veiða allt að 100 tonnum af þorski frá 10. febr.-15. maí, aflahámark hans var nú ákveðið 75 tonn allt árið. Það varpaði og skugga á þessa reglugerð að öll aflahámörk sma- báta voru mæld í óslægðuni afla, sem er andstætt því sem gildir um Mynd 2 Þorskafli smábáta borin saman við heildarþorskafla ■ þorskur 0 H.þorskafli E 3 c c o CS ■SC <0 í_ o n. 1984 1985 1986 1987 1988

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.