Ægir - 01.04.1989, Side 40
204
ÆGIR
4/8?
Ágúst Einarsson:
Um skiptingu afla
Ymsar upplýsingar fást með
því að líta á skiptingu afla
hérlendis og draga má
nokkrar ályktanir af því.
Afli i kjördæmum
í töflu 1 er öllum fiskafla
landsmanna árið 1988 að frádreg-
inni loðnu og síld skipt eftir kjör-
dæmum.
Það er tekinn allur botnfiskafli,
humar og rækja. Ástæða þess, að
loðnu er sleppt, er að hún er eina
fisktegundin, sem er gagngert
veidd að langmestum hluta til
bræðslu og því miklu verðminni.
Síldaraflinn er ekki tekinn með
vegna þess, hve miklu verðminni
síldin er miðað við botnfisk.
Loðnan og síldin hefðu skekkt
samanburð.
Tölurnar eru unnar upp úr
gögnum Fiskifélags íslands og er
miðað við óslægðan fisk upp úr
sjó lönduðum á hverjum stað.
Kjördæmin eru 8 talsins, en
níunda svæðinu er bætt við. Það
er sá afli, sem landað er erlendis
úr fiskskipum. Gámafiskur fellur
til í því kjördæmi eða verstöð þar
sem landað er.
Mikilvægt við þessar tölur er, að
afli frystitogara er reiknaður til
löndunarhafnar og er umreikn-
aður í fisk upp úr sjó. Einnig ber
að líta til þess, að hér er um sam-
antekt á magntölum að ræða en
ekki verðmæti.
Fiskaflinn 1988 var 699 þúsund
tonn og eru Reyknesingar stærstir
með 113 þús. tonn en Norður-
land-eystra fylgir fast á eftir með
108 þús. tonn.
Síðan koma 4 í röð, Vestfirðir,
Suðurland, Austfirðir og Vestur-
land með 11-13% af aflanum.
3 síðustu svæðin og nokkuð
jafnstór eru: erlendis landað,
Reykjavík og Norðurland-vestra,
öll með 6-7%. Athygli vekursterk
staða Reykjavíkur og e.t.v. veikari
útkoma Norðurlands-vestra en
ætla mætti að óreyndu.
10 á toppnum
Ef skoðaðar eru 10 stærstu ver-
stöðvar landsins, þá sýnir tafla 2
landaðan afla án loðnu og síldar
skipt eftir verstöðvum 1988.
Tafla 1
Landabur afli 1988, annar en
loðna og síld, skipt eftir
kjördæmum.
Þús.
tonn %
Reykjaneskjördæmi 113 16%
Norðurland-eystra 108 16%
Vestfirðir 100 14%
Suðurlandskjördæmi 88 13%
Austurlandskjördæm i 79 11%
Vesturlandskjördæm i 75 11%
Erlendis 47 7%
Reykjavík 45 6%
Norðurland-vestra 44 6%
Samtals 699 100
Tafla 2
Landaður afli 1988, annar
loðna og síld, skipt eftir
verstöðvum
Þús. röð á
tonn lista
Vestmannaeyjar 58 1
Reykjavík 45 2
Akureyri 41 3
Flafnarfjörður 39 4
Keflavík 32 5
Þorlákshöfn 29 6
ísafjörður 28 7
Akranes 26 8
Sandgerði 22 9
Grindavík 21 10
Samtals 341
Vestmannaeyjar eru á topPnUl11
eins og oft áður með 58 þús. t°pr1.
Silfrið fer til Reykjavíkur, en þ111
þykir mörgum furðulegt, el1
Reykjavík hefur samt til mar8rí1
ára verið næst stærst eða stsr
verstöðva á landinu. ^
Á Suðvesturlandi eru 7 af
stærstu verstöðvum landsi|rS'
Engin verstöð á Norðurlai1 1
vestra né á Austfjörðum kemst ^
listann og einungis Isafjörður
vestan. *,
nieð
Þessar 10 verstöðvar eru
afla
tæpan helming af öllum
íslendinga, en verstöðvar í hei
landinu eru 59 talsins.
Listinn fyrir árið 1987 er í töflu - •