Ægir - 01.08.1989, Síða 22
418
ÆGIR
8/89
Steinar Viggósson:
Breytingar á fiskiskipum
og hönnun nýrra fiskiskipa
INNGANGUR
A undanförnum áratugum hefur
orðið mikil breyting á fiskiskipa-
flota íslendinga.
Hér er í stuttu máli gerð grein
fyrir hverjar breytingar hafa verið
gerðar síðustu árin. Aðallega
fjallað um endurbyggingar á eldri
skipum og hönnun minni fiski-
skipa.
BREYTINGAR Á SKIPUM
Til að fjalla um breytingar og
þróun fiskiskipaflotans er nauð-
synlegt að skipta honum upp í
stærðarflokka.
Bátar 50 brt. og minni
Breyting á þessum skipum hefur
ekki verið umtalsverð, þó hefur
það færst í vöxt að þessir bátar
hafa verið búnir togveiðarfærum.
Ekki er hægt að mæla með að svo
sé gert nema að undangenginni
nákvæmri athugun á stöðugleika
þeirra. Allmargir bátar af þessari
stærð hafa farist síðustu ár og er
þar meðal annars ófullnægjandi
stöðugleika kennt um. (Sjá mynd
1).
Meðalstórir bátar (50 - 250 brt.)
Á árunum 1960-1970 átti sér
stað mikil endurnýjun á fiskiskipa-
flotanum. Á fyrri hluta þessa tíma
var mikil síldveiði við landið, verð
var hátt, mikil bjartsýni var ríkj-
andi og samið var um smíði á
mörgum skipum. Þessir bátar hafa
síðan gengið í gegnum meiri
breytingar en áður hefur þekkst á
íslandi. (Sjá mynd 3).
Líta má á þessar breytingar á tvo
vegu. Annars vegar sem endur-
nýjun á búnaði og tækjum svo
sem aðalvél, vindum, stýrishúsi,
breytingu á rafmagni úr DC í AC
o.fl. Hins vegar sem breytingar á
skipinu vegna olíusparnaðar,
bættra íbúða, nýrra veiðarfæra,
bættrar vinnuaðstöðu og bættrar
meðferðar á afla. Það eru mjög
skiptar skoðanir um ágæti þessara
miklu breytinga. Sem rök á móti
þeim má nefna að þessir bátar eru
oft orðnir all gamlir þegar breyting-
arnar eru gerðar og því ástand
skipanna misgott vegna tæringar,
slits. o.fl.
Einnig er við upphaflega hönnun
skipsins búið að festa ákveðna
hluti svo sem skrokkform, stað-
setningu á íbúðum o.fl. sem
kemur í veg fyrir að hámarks-
árangur náist við breytingarnar.
Alvarlegast má þó telja að ekki
er sjáanlegt að þessar breytingar
hafi stuðlað að minni slysatíðni
meðal sjómanna. En nánar verður
vikið að því síðar.
Developement for smatl vessets
Úr fyrirlestri sem haldinn var í Bella
Center á World Fishing Exhibition
1989.